Lífið

Það jákvæða trompar það neikvæða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sunneva Einarsdóttir hefur náð mögnuðum árangri á Instagram og Snapchat. Hún er ein af þeim fáu sem byrjaði fyrst á Instagram.
Sunneva Einarsdóttir hefur náð mögnuðum árangri á Instagram og Snapchat. Hún er ein af þeim fáu sem byrjaði fyrst á Instagram. vísir/vilhelm
Með fullri virðingu fyrir öðrum áhrifavöldum hér á landi þá er Sunneva Einarsdóttir ein sú allra vinsælasta á Íslandi. Hún hefur yfir 36.000 fylgjendur á Instagram og heill haugur eltir hana á Snapchat.

Sunneva er sjötti gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Sunneva er gríðarlega fyrirferðamikil á Instagram og á Snapchat (sunnevaeinars).

„Ég kannski áttaði mig á því fyrir svona einu ári, þegar viðskiptatækifærin fóru að koma inn, að ég væri að gera eitthvað rétt á þessum miðlum,“ segir Sunneva en hennar leyndarmál er góð lýsing og gæði í myndum.

Hún segist taka mjög margar myndir af sér og svo er kannski einn til tvær góðar birtingahæfar.

Sunneva segist vita að hún sé töluvert mikið á milli tannanna á fólki.

Sunneva Einarsdóttir fékk að kynnast því að vera pínulítil á samfélagsmiðlum þegar hún fór út til Bandaríkjanna og hitti J-Lo ásamt öðrum áhrifavöldum.
„Það er alltaf einhver sem móðgast yfir einhverju og ég meina ekkert illt með neinu sem ég er að gera. Ég skipti mér svo lítið að því hvað aðrir eru að gera, svo ég skil ekki af hverju fólk skiptir sér að svona hlutum hjá mér,“ segir Sunneva og segir frá leiðinlegustu kjaftasögunni sem hún heyrði um sig:

„Ég átti að hafa verið rekinn úr vinnunni minni sem var alls ekki rétt. Það var enginn að spyrja mig persónulega út í þetta, bara allir að spyrja alla í kringum mig.“

Sunneva segir að það taki vissulega mikið á andlega að vera svona áberandi á samfélagsmiðlum. 

„Það tekur á þegar það koma sögur um mann og maður á sína góðu og slæmu daga, en ég reyni að láta þetta ekki hafa áhrif á mig.“

Í þættinum ræðir Sunneva einnig um þegar hún hitti söngkonuna Jennifer Lopez, kvíðann sem fylgir því að vera svona stór persóna á samfélagsmiðlum hér á landi, um duldar auglýsingar og framtíðina á sviði samfélagsmiðla en Sunneva er í námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Hér að neðan má sjá sjötta þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×