Golf

Guðrún Brá áfram │Birgir og Haraldur á fjórum höggum undir pari

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Aðeins ein hindrun er nú í vegi Guðrúnar
Aðeins ein hindrun er nú í vegi Guðrúnar mynd/golf.is
Birgir Leifur Hafþórsson stefnir hraðbyr á Evrópumótaröðina í golfi eftir annan frábæran hring á öðru stigi úrtökumótanna í dag.

Birgir Leifur spilar á El Encin golfvellinum á Spáni og hann fór holurnar 18 í dag á fjórum höggum undir pari. Þetta var þriðji hringurinn af fjórum og hann er samtals á tólf höggum undir pari.

Hann er jafn í fimmta sæti, fimm höggum á eftir efsta manni.

Haraldur Franklín Magnús er líka að keppa á öðru stigi en hann er á Desert Springs vellinum á Spáni.

Haraldur er jafn í 22. sæti eftir að hafa farið hringinn í dag á fjórum höggum undir pari. Hann er samtals á sjö höggum undir pari eftir þrjá hringi, átta höggum frá efsta manni.

Áætlað er að um tuttugu kylfingar af hverjum velli á öðru stigi fari áfram á þriðja og síðasta stig úrtökumótanna, en það er eitt mót spilað á Spáni í næstu viku.

Haraldur á því enn séns á að komast þangað ef hann spilar vel á morgun en gæti þurft á því að halda að nokkrir af þeim kylfingum sem eru fyrir ofan hann lendi í hrakföllum. Birgir Leifur virðist hins vegar getað framlengt hóteldvöl sína á Spáni, það stefnir allt á að hann tryggi sig örugglega áfram.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir tryggði sér sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar í kvennaflokki í dag.

Íslandsmeistarinn frá því í sumar lék fyrra úrtökumótið á átta höggum yfir pari og endaði jöfn í 21. - 23. sæti. Hún fór fjórða og síðasta hringinn í dag á tveimur höggum yfir pari.

Lokaúrtökumótið fer fram í Morokkó í desember þar sem efstu 25 kylfingarnir fara áfram á Evrópumótaröðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×