Handbolti

Leikið í Vestmannaeyjum klukkan 18.00

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurbergur Sveinsson í leik með ÍBV.
Sigurbergur Sveinsson í leik með ÍBV. Vísir/Daníel
Íslandsmeistarar ÍBV taka á móti Val í Olísdeild karla í Vestmannaeyjum í kvöld en það skal áréttað að leikurinn hefst klukkan 18.00, en ekki 18.30 eins og sagt var frá í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Eftirvæntingin fyrir leiknum er mikil en ÍBV og Valur eru bæði um miðja deild og geta með sigri í kvöld tekið mikilvægt skref í átt að því að blanda sér í toppbaráttu deildarinnar.

Þetta verður einnig fyrsti deildarleikur þeirra Agnars Smára Jónssonar og Róberts Arons Hostert í Vestmannaeyjum en þeir gengu í raðir Vals í sumar eftir að hafa spilað með ÍBV síðustu tvo tímabil á undan.

Stöð 2 Sport verður með beina útsendingu frá leiknum sem hefst klukkan 17.45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×