Fótbolti

Sjáðu draumamark Ronaldo, sögulegt mark Arnórs og öll hin í Meistaradeildinni í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Pogba fagnar sigurmarkinu.
Paul Pogba fagnar sigurmarkinu. Vísir/Getty
Fjórða umferð Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi þar sem stærstu úrslit kvöldsins voru örygglega endurkomusigur Manchester United á útivelli á móti Cristiano Ronaldo og félögum í Juventus.

Cristiano Ronaldo kom Juventus yfir með frábæru marki en United mönnum tókst að snúa leiknum sér í vil á lokamínútunum. Sigurmarkið var skrautlegt sjálfsmark en það fyrra skoraði Juan Mata beint úr aukaspyrnu.

Fyrr um daginn hafði Arnór Sigurðsson sett nýtt íslenskt met þegar hann skoraði fyrir CSKA Moskvu á móti Roma en hann er yngsti Íslendingurinn sem skorar í Meisaradeildinni.

Hér fyrir neðan má sjá öll mörkin sem voru skoruð í Meistaradeildinni í gærkvöldi en þar er nóg að taka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×