Lífið

Karakterarnir byggðir á fólki sem Hjálmar þarf að fá útrás fyrir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjálmar Örn er léttur og skemmtilegur á Snapchat.
Hjálmar Örn er léttur og skemmtilegur á Snapchat.
Hjálmar Örn er hvað þekktastur fyrir stórkostlega karaktera á borð við Hvítvínskonuna, Bjarna gröfumann og Karl Önnuson Magnason Sigrúnarson. Hann er stjarna á samfélagsmiðlum en hefur líklega öðruvísi bakgrunn og stíl en aðrir í þeim bransa. Hjálmar er fimmti gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Hjálmar er fyrirferðamikill á Snapchat hjalmarorn110.

„Ef ég á að segja þér alveg eins og er er þetta byggt á fólki í kringum mig sem ég þarf að fá útrás fyrir og mér finnst betra að gera þetta heldur að vera alltaf að velta því fyrir mér af hverju sumir geta ekki verið öðruvísi en þeir eru,“ segir Hjálmar um karakterana sem hann hefur vakið hvað mest athygli fyrir.

„Bjarni gröfumaður er byggður af gamla skólanum algjörlega. Gömlum körlum sem eru bara með fordóma og vilja bara vinna. Þekkja ekkert annað en að vinna og byrja borga VR eða Eflingu bara tveggja þriggja ára gamlir,“ segir Hjálmar og fer því næst yfir í Hvítvínskonuna.

„Hún er byggð á konum sem elska bara hvítt og að njóta að lífið er núna,“ segir Hjálmar og bætir við að Karl Önnuson Magnason Sigrúnarson sé byggður á öfgafemínistum sem hoppuðu á vagninn á sínum tíma en voru kannski ekki alveg heilir í því sem þeir voru að gera.

Í þættinum ræðir Hjálmar einnig um þáttinn Háski sem sýndur var á Vísi og slógu ekki í gegn, um kvikmyndabransann og um þann heiður að fá að leika með Ladda og Hilmi Snæ, um lykilinn að vera góður bílasölumaður, um baráttuna við aukakílóin og hvað sé framundan hjá kappanum.

Hér að neðan má sjá fimmta þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×