Sport

Stórt skref Anthony Smith í átt að titlinum

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Vísir/Getty
UFC var með bardagakvöld í Montcon í Kanada í nótt. Í aðalbardaga kvöldsins sáum við Anthony Smith sigra Volkan Oezdemir í 3. lotu.

Anthony Smith hefur lengst af barist í millivigt á ferli sínum í UFC. Fyrr á árinu ákvað Smith að færa sig upp um flokk og er nú ansi nálægt titilbardaga í léttþungavigt.

Bardaginn gegn Volkan Oezdemir var nokkuð mikilvægur fyrir léttþungavigtina. Svisslendingurinn Oezdemir byrjaði vel og tók fyrstu tvær loturnar. Oezdemir beitti þungum lágspörkum og náði að taka Smith niður í 2. lotu. Smith sýndi ekki merkilega takta í gólfinu og var Oezdemir með bardagann í sínum höndum.

Í 3. lotu virkaði Smith þreyttur en á sama tíma eins og hann væri að detta í gang. Smith er þekktur fyrir að vera lengi af stað og náði hann nokkrum góðum höggum inn á fyrstu mínútum lotunnar. Smith náði að koma Oezdemir tvisvar niður í lotunni en í seinna skiptið tókst honum að halda Oezdemir betur niðri.

Smith vann vel í gólfinu og sótti í henginguna en Oezdemir varðist ágætlega. Smith náði loksins að læsa hengingunni almennilega í lok lotunnar og þurfti Oezdemir að tappa út þegar rúmar 30 sekúndur voru eftir af lotunni eftir „rear naked choke“.

Með sigrinum er Smith kominn ansi nálægt titilbardaga en fyrir ári síðan (á meðan hann var í millivigt) var fátt sem benti til þess að Anthony Smith myndi nokkurn tímann vera nálægt titilbardaga.

Michael Johnson sigraði svo Artem Lobov í næstsíðasta bardaga kvöldsins og var þetta þriðja tapið í röð hjá Lobov. Öll önnur úrslit kvöldsins má sjá á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir

Rotarar mætast í Kanada

Tveir ansi færir rotarar mætast í aðalbardaga kvöldsins á UFC bardagakvöldinu í Montcon í Kanada í kvöld. Bardagar beggja eru yfirleitt fljótir að klárast og má búast við stuttu en skemmtilegu fjöri í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×