Enski boltinn

Gjafmildi eigandi Leicester sem forðaðist sviðsljósið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Fólk hefur lagt leið sína á King Power leikvanginn í morgun og lagt til blóm og kerti til minningar Srivaddhanaprabha
Fólk hefur lagt leið sína á King Power leikvanginn í morgun og lagt til blóm og kerti til minningar Srivaddhanaprabha Vísir/Getty
Eigandi Leicester City Vichai Srivaddhanaprabha lést á laugardagskvöld þegar þyrla hans brotlenti fyrir utan King Power leikvanginn í Leicester. Srivaddhanaprabha forðaðist sviðsljósið, var heiðraður af konungi Tælands og borgaði upp skuldir Leicester á innan við fimm árum.

Vichai Raksriaksorn fæddist 4. apríl 1958 í Bangkok, Tælandi og var því sextugur að aldri. Hann skilur eftir sig eiginkonu Aimon og fjögur börn. Hann fékk nafnið Srivaddhanaprabha árið 2012 og var það gjöf frá þáverandi konungi Tælands Bhumibol Adulyadej. Konungurinn gaf fjölskyldunni nafnið fyrir verk unnin í þágu þjóðarinnar.

Srivaddhanaprabha stofnaði King Power árið 1989, þá fríhafnarverslun í miðbæ Bangok. Árið 1995 fékk King Power einkarétt á fríhafnarverslun á Don Mueang flugvellinum sem var á þeim tíma aðal flugvöllur Bangkok. Í dag er King Power með nánast einokun á fríhafnarverslun í Tælandi.

Þrettán-faldaði virði Leicester á átta árum
Stuðningsmenn Leicester kunnu vel að meta eigandannvísir/getty
Árið 2010 keypti Asian Football Investments, fjárfestingahópur í eigu Srivaddhanaprabha, fótboltafélagið Leicester City af viðskiptajöfrinum Milan Mandaric. Mandaric var hluti af AFI og hélt stöðu sinni sem stjórnarformaður þar til í febrúar 2011 þegar Srivaddhanaprabha tók við af honum.

Á fimm árum náði Srivaddhanaprabha að koma Leicester upp í ensku úrvalsdeildina, borga upp allar skuldir félagsins og fagnaði svo Englandsmeistaratitlinum vorið 2016 eftir eitt mesta öskubuskuævintýristímabil síðustu ára.

Hann keypti Leicester á 39 milljónir punda. Í úttekt sem KPMG gerði í maí síðast liðinn var félagið metið á 523 milljónir punda sem er meira heldur en verðmæti ítölsku risanna Inter og AC Mílanó.

Árið 2017 keypti King Power belgíska félagið OH Leuven.

Byggði veldi sitt með nánd við pólitíkusa
Srivaddhanaprabha var nokkuð umdeildur innan viðskiptasamfélagsins í Tælandivísir/getty
Breska blaðið Guardian birti umfjöllun um Srivaddhanaprabha vorið 2016. Þar var haft eftir nafnlausri heimild innan viðskiptasamfélagsins í Bangkok að „Vichai byggði veldi sitt á því að umgangast stjórnmálamenn. Það er leiðin til þess að verða ríkur. Fyrir það var hann bara meðaljón.“

Samkvæmt lista Forbes var Srivaddhanaprabha fjórði ríkasti Tælendingurinn árið 2018 og var verðmæti hans 2,9 milljarðar punda.

Srivaddhanaprabha var í miklu áliti á meðal elítunnar í Tælandi þar sem hann gerði mikið í því að bera boðskap Tælands um heiminn. Til dæmis um það flaug hann tælenskum munkum til Englands og lét þá blessa heimavöll Leicester sem og leikmennina.

Gjafmildur og hógvær vínunnandi
Srivaddhanaprabha var á bak við tjöldin í stærsta íþróttaævintýri síðustu áravísir/getty
Á verðlaunakvöldi Leicester eftir Englandsmeistaratímabilið 2015-16 var tilkynnt að Srivaddhanaprabha hefði styrkt sjúkrahús í borginni um eina milljón punda og gaf hann öllum leikmönnum liðsins nýja BMW bifreið í þakkir fyrir afrekið.

Þrátt fyrir gjafmildi var Srivaddhanaprabha ekki mikið fyrir sviðsljósið og lítið er vitað um hann og hans einkalíf.

Hann bjó í London en átti einnig eign í Berkskíri þar sem hann átti nokkra hesta. Hann flaug í þyrlu sinni til og frá öllum heimaleikjum Leicester. Hann sást oft á viðburðum með meðlimum bresku konungsfjölskyldunnar og hann naut lífs breska aðalsins vel.

Sál Leicester City
Þyrla Srivaddhanaprabha tók á loft af miðjum vellinum á laugardagskvöld eins og hún hafði gert marg oft áður. Örfáum augnablikum síðar féll hún til jarðar á bílastæði fyrir utan leikvanginn með hörmulegum afleiðingum.vísir/getty
Eftir að fréttir bárust af slysinu á laugardagskvöld hafa ýmis stór nöfn í fótboltasamfélaginu, sem og í heiminum öllum, sent frá sér samúðarkveðjur til Srivaddhanaprabha-fjölskyldunnar og er ljóst að Vichai var mjög vel liðinn í herbúðum Leicester City.

Hæst heyrðist í danska landsliðsmarkverðinum Kasper Schmeichel. Hann sást hlaupa í átt að þyrlunni þegar slysið varð og er sagður hafa setið á vellinum og grátið langt fram á aðfaranótt sunnudags. „Hjarta mitt er brostið og ég er algjörlega í rusli,“ sagði Schmeichel meðal annars í kveðju sinni.









Vilhjálmur prins, hertoginn af Cambridge, sagðist hafa verið heppinn að fá að kynnast Srivaddhanaprabha.

„Framlag hans til íþróttarinnar í gegnum töfratímabil Leicester 2016 var svo stórt að það hreif allan heiminn. Hans verður saknað af stuðningsmönnum íþrótarinnar og öllum sem urðu þeirrar lukku aðhljótandi að þekkja hann,“ sagði hertoginn.









Framherjinn Jamie Vardy átti erfitt með að finna réttu orðin en sagði „fyrir mér ert þú goðsögn. Ótrúlegur maður sem var sál Leicester City.“

Forsetisráðherra Bretlands Theresa May sendi fjölskyldu og vinum þeirra sem létust samúðarkveðjur og sagði sorgina sem ríkir vitnisburð um hversu mörg líf þeir sem voru um borð höfðu áhrif á.









Einn þekktasti stuðningsmaður Leicester, fyrrum landsliðsframherji Englands Gary Lineker, er stjórnandi uppgjörsþáttarins Match of the Day sem er í loftinu á BBC á laugardagskvöldum.

„Við förum venjulega í loftið og segjum ykkur frá leikjunum sem við munum fjalla um í þættinum. Þetta er hins vegar ekki venjulegur laugardagur,“ sagði Lineker þegar hann opnaði þáttin og sagði svo þjóðinni frá því sem gerst hafði fyrr um kvöldið. Hann sagði síðar frá því á Twitter að þetta hafi verið erfiðasti þáttur sem hann hafi tekið upp á ferlinum.







Alls létu fimm manns lífið í slysinu. Srivaddhanaprabha, aðstoðarmenn hans tveir Nursara Suknamai og Kaveporn Punpari, flugmaðurinn Eric Swaffer og kona hans Izabela Roza Lechowicz. Rannsókn á orsökum slyssins er enn ekki lokið og ekki ljóst hvað hafi ollið falli þyrlunnar. 


Tengdar fréttir

Eigandi Leicester einn af fimm sem fórust

Leicester City hefur staðfest að eigandi knattspyrnufélagsins, Vichai Srivaddhanaprabha, hafi verið í borð í þyrlu hans sem brotlenti fyrir utan leikvang liðsins King Power Stadium í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×