Bíó og sjónvarp

Troðfullt á sérstaka frumsýningu Undir halastjörnu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gestir voru hrifnir af kvikmyndinni.
Gestir voru hrifnir af kvikmyndinni. myndir/mummi lú
Undir Halastjörnu var í gærkvöldi frumsýnd við hátíðlega athöfn í Smárabíó en myndin er byggð á Líkfundarmálinu sem vakti gríðarlega athygli hér á landi árið 2004. Leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi er Ari Alexander Ergis Magnússon - aðrir framleiðendur eru Friðrik Þór Friðriksson og Kristinn Þórðarson og Leifur Dagfinsson hjá Truenorth. 

Hugmyndin að myndinni kviknaði út frá raunverulegum atburðum sem gerðust í Litháen og á Íslandi árið 2004. Þann 4. febrúar það ár fór kafari í höfnina á Neskaupstað til að kanna skemmdir á bryggjumannvirkum en fann í staðinn illa leikið lík sem hafði verið þyngt með keðjum og kastað í sjóinn.

Lögreglan hóf ýtarlega rannsókn og í ljós kom að líkið væri af 26 ára Litháa sem við köllum Mihkel í myndinni. 

Pääru Oja og Tómas Lemarquis létu sig ekki vanta. Með þeim er Svandís Eva Brynjarsdóttir sem leikur einnig í kvikmyndinni.mynd/mummi lú
Böndin bárust fljótt að smákrimmanum Bóbó sem var nýkominn til bæjarins frá Reykjavík og tveimur öðrum sem komið höfðu að heimsækja hann. Annar þeirra var Jóhann en hinn Igor, vinur Mihkels frá Litháen sem hafði búið nokkur ár á Íslandi og unnið fyrir Jóhann. 

Í myndinni er Litháen skipt út fyrir Eistland til að hlífa fólki sem tengist sögunni. 

Leikstjóri: Ari Alexander Ergis Magnússon

Handritshöfundur: Ari Alexander Ergis Magnússon 

Meðframleiðendur: Evelin Soosaar-Penttilä, Egil Ødegård Riina Sildos, Jörundur Rafn Arnarson og Jóhann G. Jóhannsson 

Aðalhlutverk: Pääru Oja, Kaspar Velberg, Atli Rafn Sigurðsson og Tómas Lemarquis.

 


Fullt var í Smárabíói í gærkvöldi og tóku leikstjóri og aðalleikarar kvikmyndarinnar á móti gestum. Aðalleikarinn Pääru Oja mætti á sýninguna en hann leikur Mihkel.

Ljósmyndarinn Mummi Lú var á svæðinu og fangaði stemninguna á frumsýningunni.

Ari Alexander Ergis Magnússon hélt ræðu fyrir sýninguna.mynd/mummi lú
Siggi Sigurjóns og Pálmi Gestsson voru á svæðinu.mynd/mummi lú
Mætingin var vonum framar og fylltu gestir tvo stærstu salina í Smárabíó.mynd/mummi lú
Ari Alexander leikstjóri og framleiðendurnir Leifur B. Dagfinnsson og Kristinn Þórðarson hjá True North.mynd/mummi lú
Fjölmargir gestir létu sjá sig.mynd/mummi lú
Viðtökurnar voru góðar eftir sýninguna.mynd/mummi lú





Fleiri fréttir

Sjá meira


×