Matur

Einfalt með Evu: Súkkalaðikaka með blautri miðju

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sjöundi þátturinn af Einfalt með Evu var á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldið.
Sjöundi þátturinn af Einfalt með Evu var á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldið.

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.

Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Á miðvikudagskvöldið sýndi Eva Laufey hvernig hún reiðir fram grænan hristing, seasar salat, grænmetislasagna og súkkulaðiköku með blautri miðju. 

Hér að neðan má sjá hvernig maður reiðir fram þessa girnilegu súkkulaðiköku.

Grænn hristingur

  • Handfylli spínat  
  • 1 dl frosið mangó
  • 1 msk chia fræ
  • ½ - 1 msk hampfræ
  • Möndlumjólk, magn eftir smekk
  • ½ banani
  • 2 cm engiferrót



    Aðferð:
  1. Setjið öll hráefnin í blandara og maukið þar til drykkurinn er silkimjúkur.

    Sesar salat - Hvítlauks-og parmesansósa

  • 3 dl sýrður rjómi
  • 1 tsk dijon sinnep
  • 1/2 hvítlauksrif
  • safi úr hálfri sítrónu
  • salt og pipar
  • 60 g nýrifinn parmesan ostur

Aðferð:

  1. Maukið öll hráefnin saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél, smakkið ykkur til með salti og pipar. Það er gott að kæla sósuna aðeins í ísskáp áður en hún er borin fram með salatinu.

Brauðteningar

  • Brauð að eigin vali
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið brauð í jafn stóra teninga, hitið ólífuolíu á pönnu og steikið þar til brauðteningarnir eru gullinbrúnir og stökkir.

Salatið

  • 4 kjúklingalæri með legg
  • 1 msk ólífuolía
  • Salt og pipar, magn eftir smekk
  • 1 höfuð romain kál
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 1 agúrka
  • 150 g beikon, steikt
  • Parmesan ostur, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Sáldrið ólífuolíu yfir kjúklinginn og kryddið til með salti og pipar, hitið pönnu (pannan verður að vera funheit, mjög mikilvægt!) og steikið kjúklinginn þar til skinnið verður stökkt. Leggið síðan kjúklingabitana á pappírsklædda ofnplötu og eldið í ofni við 180°C í 20 - 25 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  2. Steikið beikon þar til það er orðið vel stökkt.
  3. Skolið kálið vel og leggið á fat, skerið niður tómata og agúrku og leggið yfir. Því næst fer kjúklingurinn, nýrifinn parmesan og brauðteningar.
  4. Berið salatið fram með hvítlauks-og parmesansósunni.

Grænmetislasagna með eggaldinplötum

  • 1 msk ólífuolía
  • 1 rauðlaukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 rauð paprika
  • 3 gulrætur
  • ½ kúrbítur
  • ½ spergilkálshöfuð
  • 3 sveppir
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1 krukka maukaðir  tómatar (425 g)
  • 1 grænmetisteningur
  • 1 msk smátt söxuð basilíka
  • Salt og pipar
  • 2 eggaldin
  • Rifinn ostur
  • 1 stór dós kotasæla
  • Ferskur aspas

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 180°C.
  2. Hitið ólífuolíu á pönnu. Skerið lauk og hvítlauk og steikið upp úr olíu þar til laukurinn er mjúkur í gegn.
  3. Skerið öll hráefnin mjög smátt, bætið þeim út á pönnuna og steikið áfram þar til grænmetið er orðið mjúkt í gegn.
  4. Bætið maukuðum tómötum, tómatpúrru og grænmetistening út á pönnuna. Kryddið til með salti og pipar og leyfið grænmetisblöndunni að malla við vægan hita í smá stund.
  5. Skerið niður eggaldinplötur mjög þunnt.
  6. Setjið grænmetisfyllingu í botninn á eldföstu móti, því næst fara eggaldinplötur og kotasælan er smurð yfir plöturnar. Sáldrið rifnum osti yfir og endurtakið leikinn þar til þið eruð komin með tvö – þrjú lög. Setjið gjarnan aspas yfir réttinn í lokin.
  7. Eldið réttinn við 180°C í 25 – 30 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.
  8. Berið fram með gómsætu kasjúhnetupestói.

Kasjúhnetupestó

  • 100 g kasjúhnetur
  • Handfylli basilíka
  • Handfylli blandað salat
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 dl rifinn parmesan ostur
  • Salt og pipar
  • Ólífuolía, magn eftir smekk
  • Safi úr hálfri sítrónu

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota.

Súkkalaðikaka með blautri miðju

  • 120 g smjör
  • 200 g súkkulaði
  • 30 g hveiti
  • 60 g flórsykur
  • salt á hnífsoddi
  • 2 eggjarauður
  • 2 egg

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 210°C
  2. Smyrjið lítil form mjög vel.
  3. Bræðið smjör og saxið súkkulaði smátt, bætið súkkulaðinu saman við og bræðið við vægan hita.
  4. Sigtið saman þurrefni.
  5. Pískið egg og eggjarauður saman í annarri skál.
  6. Hellið eggjablöndunni saman við hveitiblönduna og hrærið.
  7. Næsta skref er að hella deiginum út í skál með bræddu súkkulaði og hræra öllu mjög vel saman.
  8. Skiptið deiginu niður í form og bakið við 210°C í 10 – 12 mínútur. (ég bakaði mínar í nákvæmlega 12 mínútur og þær voru fullkomnar)

    *Ofnar eru mjög misjafnir og mögulega þurfið þið aðeins minni eða meiri baksturstíma, þið finnið það best sjálf. Ef þið viljið æfa ykkur þá mæli ég með því að baka eina köku í einu, en með því getið þið fundið út hvaða tími sé bestur í ykkar ofni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×