Körfubolti

Körfuboltakvöld: Frábært hjá Haukum að fá Lele

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lele Hardy var frábær í sigrinum á Val
Lele Hardy var frábær í sigrinum á Val S2 Sport
Haukar höfðu betur gegn Val í annari umferð Domino's deild kvenna í uppgjöri liðanna sem háðu úrslitaeinvígið í vor. Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport fóru vel yfir leikinn.

Lele Hardy var frábær í leiknum og komst á Nü Fusion Þrennuvegginn með 17 stig, 20 fráköst og 10 stoðsendingar.

„Hún er að standa undir því sem vonir stóðu til um. Þetta er leikmaður sem tekur svo svakalega mikla athygli til sín og svo er hún með þessar ungu stelpur sem eru hörkugóðar,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson.

„Mér fannst þetta frábært skref hjá Haukum að fá hana.“

Sigrún Björg Ólafsdóttir var stigahæst í liði Hauka með 20 stig. Hún er aðeins 17 ára en spilaði virkilega vel í úrslitaeinvíginu í vor og er að fylgja því eftir í upphafi þessa tímabils.

„Það sem mér finnst standa upp úr hjá þessari stelpu, burt séð frá sóknarleiknum, hún er fáránlega góð í vörn,“ sagði Jón Halldór.

„Það þreytir hana ekkert varnarlega og ótrúlega skemmtilegt þegar ungir leikmenn eru að uppskera eftir að hafa lagt hart að sér.“

Jón Halldór hrósaði Haukaliðinu mikið en sagðist að sama skapi hafa orðið fyrir vonbrigðum með Val.

„Ég átti von á því að Valur yrði sterkari en þær voru í þessum leik.“

Sérfræðingarnir völdu úrvalslið annarar umferðar í kvennadeildinni og þar áttu Snæfell og Haukar tvo fulltrúa.

Ólöf Helga Pálsdóttir var þjálfari úrvalsliðsins sem var skipað þeim Gunnhildi Gunnarsdóttur, Kristen McCarthy, Sigrúnu Björgu Ólafsdóttur, Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur og Mariu Palacios.

Leikmaður umferðarinnar var Kristen McCarthy. Hún setti 28 stig, tók 15 fráköst og átti 8 stoðsendingar ásamt 10 stolnum boltum í sigri Snæfells á Keflavík.

Úrvalslið 2. umferðar Domino's deildar kvennaS2 Sport



Fleiri fréttir

Sjá meira


×