Enski boltinn

Shaw að framlengja við Man. Utd | Margir að verða samningslausir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Shaw hefu verið frábær í vetur. Ljósið í myrkrinu segja sumar.
Shaw hefu verið frábær í vetur. Ljósið í myrkrinu segja sumar. vísir/getty
Bakvörðurinn Luke Shaw er að fá nýjan og betri samning við Man. Utd eftir að hafa staðið sig frábærlega það sem af er leiktíðar.

Núverandi samningur Shaw við United rennur út næsta sumar og eftir upprisu Shaw í vetur kemur ekki til greina hjá félaginu að sleppa leikmanninum.

Alls munu ellefu leikmenn Man. Utd verða samningslausir næsta sumar. Man. Utd er einnig í viðræðum við David de Gea og Anthony Martial um nýjan samning. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort Antonio Valencia og Ashley Young verði boðinn nýr samningur.

Sömu sögu má segja af Phil Jones, Chris Smalling, Ander Herrera, Matteo Darmian, Andreas Pereira og Juan Mata. Það gætu því orðið miklar breytingar á liði United næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×