Innlent

Fara fram á farbann yfir skútuþjófnum

Andri Eysteinsson skrifar
Skútan við bryggju í Rifi.
Skútan við bryggju í Rifi. Vísir
Lögreglan á Vestfjörðum mun fara fram á farbann yfir manninum sem rændi skútunni Inook úr Ísafjarðarhöfn aðfararnótt sunnudags.

Lögregla leitaði hjálpar Landhelgisgæslunnar og fann þyrla gæslunnar skútuna og vísaði henni til hafnar í Rifi á Snæfellsnesi. Þar var maðurinn handtekinn af lögreglunni á Vesturlandi. 

Fram kemur í tilkynningu að sakborningurinn verði innan tíðar færður fyrir Héraðsdóm Vestfjarða en þar mun lögreglustjórinn fara fram á farbann yfir manninum.


Tengdar fréttir

Skútan komin til hafnar í Rifi

Skipstjóri skútunnar var handtekinn í Rifi en ekki liggur fyrir hvort hann hafi verið einn um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×