Handbolti

Yndisleg ræða hjá þjálfara Stefáns Rafns | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pastor er skemmtilegur karakter.
Pastor er skemmtilegur karakter. vísir/getty
Spænskir þjálfarar í handboltaheiminum vekja oftar en ekki athygli fyrir ræður sínar enda er enskukunnáttan oft ekki upp á marga fiska.

Þó svo enskukunnáttan sé ekki alltaf upp á tíu þá er enginn afgangur af ástríðunni. Hún er alltaf upp á tíu.

Juan Carlos Pastor þjálfar ungverska liðið Pick Szeged, sem landsliðsmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson leikur með, og ræða hans eftir leik í lok september hefur slegið í gegn.

Þar talar hann frá hjartanu til leikmanna sinna eftir flottan tveggja marka sigur á franska liðinu Nantes. Það skilst ekki endilega allt sem hann segir en ræðan er yndisleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×