Íslenski boltinn

Jón Þór hættur hjá Stjörnunni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jón Þór á hliðarlínunni hjá ÍA síðasta sumar
Jón Þór á hliðarlínunni hjá ÍA síðasta sumar vísir
Jón Þór Hauksson er hættur sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Hann komst að samkomulagi við félagið um starfslok.

Í gær birtust fréttir af því að Jón Þór hefði átt í viðræðum við KSÍ um að taka við starfi landsliðsþjálfara kvenna.

Jón Þór kom til Stjörnuliðsins fyrir nýafstaðið tímabil eftir að hafa verið aðalþjálfari ÍA í síðustu leikjum liðsins sumarið 2017.

„Jón var einkar snöggur að vinna sér hug og hjörtu Stjörnumanna og hefur sett skemmtilegan svip á liðið á skömmum tíma. Stjarnan þakkar Jóni fyrir sitt framlag til liðsins,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×