Innlent

Kostnaður við hátíðarfundinn bliknar í samanburði við þjóðfundi síðustu ára

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, ávarpar hátíðarfund á Þingvöllum þann 18. júlí síðastliðinn. Boð hennar á fundinn reyndist umdeilt.
Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, ávarpar hátíðarfund á Þingvöllum þann 18. júlí síðastliðinn. Boð hennar á fundinn reyndist umdeilt. Vísir/Anton
Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi segir hátíðarfundinn á Þingvöllum í sumar hafa verið mun ódýrari en þjóðfundir sem haldnir hafa verið á Þingvöllum síðustu ár. Kostnaður við Kristnihátíð árið 2000 og Lýðveldishátíð árið 1994 hafi til að mynda hlaupið á hundruð milljónum króna.

Sjá einnig: Óheyrilegur kostnaður vegna hátíðarfundar rakinn til óstjórnar



Skúli var fenginn til að ræða málið í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. Þar sagði Skúli það sjálfsögðu slæmt ef kostnaðaráætlanir standist ekki, en greint hefur verið frá því að kostnaður við hátíðarfundinn í sumar fór um fjörutíu milljónir fram úr áætlun.

Fundurinn kostaði að endingu tæpar 87 milljónir króna og var haldinn í tilefni hundrað ára fullveldisafmælis á Íslandi. Þá þótti mörgum kostnaðurinn fram úr öllu hófi og fjörugar umræður spunnust um fundinn á samfélagsmiðlum.

Skúli Eggert Þórðarson, ríkisendurskoðandi.Vísir/Anton

Hefðu kostað 770 og 340 milljónir í dag

Ríkisendurskoðandi gerir ekki upp bókhald Alþingis en Skúli sagði þó að kostnaður við fundi sem þessa hefði verið skoðaður af embættinu. Hann fullyrti til að mynda að reynt hefði verið að hafa fundinn á Þingvöllum í sumar eins ódýran og hægt væri, auk þess sem kostnaður við fundinn hefði verið mun lægri en við sambærileg tilefni síðustu ár.

„Það eru tveir aðrir fundir sem voru haldnir árið 2000 og síðan '94 og þessi fundur er langódýrastur af þeim,“ sagði Skúli. Þar átti hann annars vegar við Kristnihátíðina sem boðað var til á Þingvöllum árið 2000 í tilefni af þúsund ára afmæli kristnitöku á Íslandi og hins vegar Lýðveldishátíðina árið 1994, einnig haldin á Þingvöllum, í tilefni af hálfrar aldar afmæli lýðveldisstofnunarinnar.

„Kristnihátíðin sem haldin var árið 2000 kostaði 341 milljón og ef það er nú framreiknað þá er það í kringum 770 milljónir, þannig að það er miklu meiri kostnaður þar,“ sagði Skúli. Síðari talan vísar þannig til kostnaðar við Kristnihátíðina, væri hún haldin í dag.

„Lýðveldishátíðin sem haldin var 1994 kostaði 129,5 milljónir og ef það er framreiknað er það í kringum 340 milljónir rúmlega. Þannig að þetta sem var gert á Þingvöllum í sumar er allt önnur stærðargráða og miklu miklu lægra, en það var líka sérstaklega að því stefnt að hafa þetta hógvært og lágt, mér er kunnugt um það.“

Viðtal við Skúla í Reykjavík síðdegis má hlusta á í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×