Íslenski boltinn

KSÍ treysti Hugin en fékk það í hausinn: „Vonum að þessu máli sé lokið fótboltanum til heilla“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ. vísir/egill
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, staðfestir við Vísi að mótanefnd dæmdi Völsungi 3-0 sigur í endurtekna leiknum á móti Huginn sem að ekkert varð úr í gær.

Leikurinn frægi sem kom til vegna breytinga á skýrslu eftir að rautt spjald var fjarlægt eftir fyrri leikinn var upphaflega settur á Seyðisfjarðarvöll samkvæmt dómsorði áfrýjunardómstóls KSÍ en færður á Fellavöll snemma í gær.

Sjá einnig:34 dagar liðnir og leikur Hugins og Völsungs er enn í fréttum: Hér er öll tímalínan

Allir aðilar fengu boð um að mæta á Fellavöll þar sem að Seyðfirðingar létu KSÍ vita að völlur þeirra væri óleikhæfur á þriðjudaginn. KSÍ sendi engan til að skoða völlinn en þetta er ekki í fyrsta sinn sem að sambandið hefur treyst orðum Huginsmanna.

Færa í Fellabæ nokkrum sinnum á ári

„Fimm til átta sinnum á ári færum við leiki frá Seyðisfjarðarvelli á Fellavöll að beiðni Hugins. Við höfum alltaf tekið orðum þeirra trúanlegum og það gerðum við líka í þessu tilviki,“ segir Klara við Vísi.

„Við fengum þrjár myndir af vellinum. Við tókum orðum þeirra og myndum trúanlegum en þeir sögðu að ekki væri hægt að hvorki merkja né slá völlinn.“

Huginn mun vafalítið leita réttar síns þar sem að félagið vill meina að KSÍ hafi brotið á eigin úrskurði með því að færa völlinn.

„Í þátttökutilkynningu Hugins stendur að heimavöllur eitt sé Seyðisfjarðarvöllur og að Fellavöllur annar heimavöllur liðsins. Niðurstaðan var að færa leikinn þangað og það fengu allir að vita. Leikskýrslan kom inn í kerfið og við töldum að allir myndu mæta þangað,“ segir Klara en svo varð nú aldeilis ekki þar sem að Völsungur mætti í Fellabæ en Huginn beið heima á Seyðisfirði.



Engu reynt að leyna

Í viðtali við RÚV sakar Sveinn Ásgeir Þórsson, formaður knattspyrnudeildar Hugins, starfsmann KSÍ um að hafa aðstoðað við að „falsa leikskýrsluna“ eftir fyrri leikinn og sami maður hafi svo fært völlinn og þannig brotið gegn dómsorði KSÍ.

Sveinn nefnir manninn aldrei á nafn en Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, er sá sem um ræðir. Klara staðfestir það en stendur með sínum manni. Hún kallar breytinguna á leikskýrslunni ekki fölsun.

„Á mánudagsmorgni eftir leikinn var reynt að lágmarka tjónið í samræmi við fyrri vinnubrögð þegar að eitthvað álíka hefur komið upp. Völsungi var tilkynnt þetta á mánudagsmorgni. Þarna var engu reynt að leyna,“ segir Klara sem tekur fyrir að um fölsun sé að ræða.

„Að falsa er eins og að falsa skattaskýrsluna sína. Það er lögbrot. En, ef ég sendi skattstjóra bréf þá er ég bara að breyta. Það er grundvallar munur þarna á og það fengu allir að vita af þessari breytingu,“ segir framkvæmdastjórinn sem finnst þetta hið leiðinlegasta mál, sérstaklega hvernig spjótin beinast að mótastjóranum.



Vonandi búið

„Auðvitað brjótast fram tilfinningar alls staðar þegar að svona hlutir sem að eiga ekki við rök að styðjast koma fram. Mótastjóri, sem er hefur verið starfsmaður hér í 30 ár, er sakaður um ákveðna hluti en þetta er engin fölsun.“

Klara er ekkert að hugsa um sektir á Huginn á þessum tímapunkti og gæti farið svo að Seyðfirðingar sleppi við sekt fyrir að mæta ekki til leiks eins og lög gera ráð fyrir.

„Það hefur ekkert verið ákveðið varðandi sektir. Þær eru vanalega bara reiknaðar upp í lok tímabils en við förum okkur hægt í því. Við höfum engan áhuga á sektum í þessu máli. Við viljum bara að þessu máli ljúki núna fótboltanum til heilla. Þetta hefur því miður ekki verið íþróttinni til framdráttar,“ segir Klara Bjartmarz.


Tengdar fréttir

Munum standa áfram með okkar málstað

Ekkert varð af leik Hugins og Völsungs í gær þar sem liðin mættu sitt á hvorn völlinn. Seyðfirðingar telja að KSÍ hafi verið óheimilt að skipta um völl og standa með sínum málstað þrátt fyrir að þeir gætu misst stig og átt von

Dómstóllinn að skapa slæmt fordæmi

Mikil umræða hefur skapast í knattspyrnuheiminum í kringum leik Hugins og Völsungs sem fram fer í 2. deildinni í knattspyrnu karla á Seyðisfjarðarvelli í dag. Mistök dómarans í leik liðanna um miðjan ágúst urðu til þess að liðin þurfa að mætast aftur.

Völsungi dæmdur 3-0 sigur á móti Hugin

Knattspyrnusamband Íslands hefur úrskurðað um leik Hugins og Völsungs í 2. deild karla sem átti að vera endurtekinn í gær en fór aldrei fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×