Lífið

Chemical Brothers hætta við tónleika í Laugardalshöll

Birgir Olgeirsson skrifar
The Chemical Brothers sjást hér á tónleikum.
The Chemical Brothers sjást hér á tónleikum. vísir/getty
Ekkert verður af fyrirhuguðum tónleikum rafdúettsins Chemical Brothers í Laugardalshöll 20. október næstkomandi.

Greint er frá þessu á Facebook-síðu tónleikanna en þar kemur fram að hætt sé við tónleikana vegna óviðráðanlegra ástæðna. Biðjast þeir afsökunar á öllum þeim óþægindum sem það kann að valda þeim sem höfðu keypt sér miða á tónleikana.

Þeir sem keyptu miða á viðurkenndum miðasölustöðum fá endurgreitt, að því er fram kemur í tilkynningunni.

The Chemical Brothers er flestum tónlistarunnendum vel kunn enda hefur hún starfað frá árinu 1989 og á frá þeim tíma meðal annars gef út sex breiðskífur sem allar hafa ratað á toppinn á breska vinsældarlistanum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×