Golf

Örn á lokaholunni tryggði Tiger toppsætið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Woods fagnar erninum
Woods fagnar erninum vísir/getty
Tiger Woods og Rickie Fowler leiða keppni á Tour Championship, úrslitamótinu á PGA mótaröðinni í golfi, eftir fyrsta keppnisdag.

Woods var á þremur höggum undir pari fyrir loka holuna eftir einn skolla og fjóra fugla. Hann gerði sér hins vegar lítið fyrir og fékk örn á 18. holunni og tryggði sig í forystuna á fimm höggum undir pari, sama skori og Rickie Fowler lauk leik á.

Gary Woodland og Englendingurinn Justin Rose eru í þriðja sæti á fjórum höggum undir pari.



EAGLE!!!@TigerWoods buries it at the last to tie the lead. #LiveUnderParpic.twitter.com/BJa9pIcXif

— PGA TOUR (@PGATOUR) September 20, 2018


Norður-Írinn Rory McIlroy er á þremur höggum undir pari eins og Justin Thomas og Tony Finau.

Rose er efstur á FedEx stigalistanum eftir þennan fyrsta hring. Woods fer upp í annað sæti listans miðað við stöðuna eftir lokahringinn og Rickie Fowler fer í það þriðja. Efsti maður stigalistans í lok þessa móts vinnur FedEx úrslitakeppnina.

Bryson DeChambeau var efstur á listanum fyrir þetta lokamót en hann náði sér ekki á strik í dag. Hann endaði á einu höggi yfir pari og fellur niður í fjórða sæti listans.

Bein útsending frá öðrum hring mótsins hefst á Golfstöðinni klukkan 17:00 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×