Golf

Fjórir fuglar og frábær hringur sem ætti að koma Ólafíu í gegnum niðurskurðinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/LET/Tristan Jones
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði flottan annan hring á Estrella Damm Ladies Open mótinu á Spáni í dag en mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni.

Ólafía Þórunn lék átján holur dagsins á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari. Þessi spilamennska skilar okkar konu upp í 41. sæti en niðurskurðarlínan er parið eins og staðan er núna. Margir kylfingar eiga aftur á móti eftir að klára í dag.

Ólafía Þórunn endaði fyrsta hringinn á skolla og einu höggi yfir parinu en bættu heldur betur stöðu sína með flottum leik í dag. 72 högg í gær en 69 högg í dag.

Ólafía byrjaði hringinn á því að fá fugl á fyrstu holu en fékk síðan skolla á annarri holunni. Hún komst síðan tveimur höggum undir pari með tveimur fuglum á þremur holum.

Skolli á níundi stríddi henni aðeins en Ólafía bætti við einum fugli á seinni nýju og endaði hringinn því á tveimur höggum undir pari.

Estrella Damm Ladies Open fer fram á vegum Golf Club de Terramar klúbbsins en völlurinn er í Sitges sem er rétt hjá Barcelona. Ólafía Þórunn er með keppnisrétt á bæði á LET Evrópumótaröðinni og á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum.

Ólafía hefur keppt á þremur mótum á tímabilinu 2018 á LET Evrópumótaröðinni. Hún keppti síðast í byrjun september á Lacoste Ladies Open de France á LET Evrópumótaröðinni. Þar endaði Ólafía Þórunn í 11. sæti. Ólafía Þórunn er í 76. sæti á stigalista mótaraðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×