Bíó og sjónvarp

Sjáðu Joaquin Phoenix í trúðagervi Jókersins

Birgir Olgeirsson skrifar
Joaquin Phoenix sem Arthur Fleck.
Joaquin Phoenix sem Arthur Fleck.
Leikstjórinn Todd Phillips birti í dag myndband af leikaranum Joaquin Phoenix í trúðagervi vegna myndarinnar Joker.

Myndin er væntanleg í kvikmyndahús í október á næsta ári en hún mun segja frá því hvernig grínistinn Arthur Fleck verður að illmenninu Jóker, sem er erkióvinur Leðurblökumannsins.

Þeir sem ekki vilja lesa getgátur um mögulegan söguþráð myndarinnar ættu að hætta lestri.

via GIPHY

Birt var mynd af Joaquin Phoenix án trúðagervisins fyrr í vikunni en nú hefur verið bætt úr því.

Phillips setti myndband á Twitter sem var sagt myndavélapróf fyrir myndina. Þar sést Phoenix fremur venjulegur í útliti en eftir því sem lengra líður á myndbandið sést hann í gervi Jókersins.

Lagið Laughing með hljómsveitinni The Guess Who heyrist á meðan.

Lítið er vitað um söguþráð myndarinnar en því er haldið fram að Phoenix eigi að leika grínista sem er að reyna að koma sér á framfæri í Gotham-borg. Hann stendur fremur höllum fæti í þeim bransa og er sagður fara yfir um eftir að spjallþáttastjórnandi, sem Robert De Niro er sagður eiga að leika, gerir lítið úr honum.

Er talið að myndin sæki innblástur í aðra mynd sem Robert De Niro lék í, The King of Comedy.

Aðrir vilja meina að myndin muni byggja á myndasögunni The Killing Joke, sem segir frá uppruna Jókersins. Í þeirri sögu er maðurinn sem verður að Jókernum sagður eiga erfitt uppdráttar sem grínisti. Konan hans fer að lokum frá honum og afmyndast hann í andliti í misheppnuðu ráni.

Joaquin Phoenix í trúðagervinu.Twitter

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×