Golf

Tveir ernir komu Birgi í gegnum niðurskurðinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Vísir/Getty
Birgir Leifur Hafþórsson fór í gegnum niðurskurðinn á Portugal Masters mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi. Hann fékk tvo erni á hringnum í dag.

Birgir Leifur var á tveimur höggum yfir pari fyrir annan hringinn í dag eftir að hafa fengið tvöfaldan skolla á 12. holunni á fyrsta hringnum.

Hann spilaði hins vegar frábærlega í dag og nældi sér meðal annars í örn á 12. holunni, bætti sig um fjögur högg á þeirri holu á milli hringja.

Hinn örn dagsins kom á fimmtu holu, sem er par fimm hola líkt og 12. holan. Birgir Leifur fékk fjóra fugla og þrjá skolla á hringnum, lék samtals á fimm höggum undir pari í dag sem skilaði honum í hús á þremur höggum undir pari í mótinu.

Það dugði í gegnum niðurskurðinn, sem var við þrjú högg undir parið.

Oliver Fisher, Eddie Pepperell og Lucas Herbert leiða mótið á 12 höggum undir pari. Fisher átti stórbrotinn hring í dag fór hringinn á 12 höggum undir pari, hann hafði verið á pari mótsins fyrir hringinn í dag.

Fisher fékk 10 fugla og einn örn, ekki einn einasta skolla. Hann spilaði hringinn á 59 höggum, fyrsti maðurinn í sögu Evrópumótaraðarinnar sem fer hring á svo fáum höggum.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×