Tónlist

Nýtt myndband með Avril Lavigne tekið upp á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Head Above Water er fyrsta myndbandið sem Avril Lavigne sendir frá sér í fimm ár.
Head Above Water er fyrsta myndbandið sem Avril Lavigne sendir frá sér í fimm ár.
Söngkonan Avril Lavigne gaf í gær út nýtt tónlistarmyndband við lagið Head Above Water og er myndbandið tekið upp á Íslandi.

Myndbandið er hið glæsilegasta og er af stórum hluta tekið upp í Reynisfjöru.

„Hjartað í mér er að springa úr gleði að geta frumsýnt nýja myndbandið mitt við Head Above Water fyrir ykkur öll á afmælisdaginn minn,“ sagði Lavigne á Instagram  í gær en hér að neðan má sjá myndbandið sjálft, en það sýnir íslenska náttúru eins og hún gerist fallegust.

Ætla má að myndbandið hafi verið tekið upp í tveimur hlutum. Annarsvegar með Lavigne sjálfri í tökuveri og með aukaleikara hér á landi. Að minnsta kosti sést aldrei framan í konuna sem er á gangi í Reynisfjöru og víðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×