Viðskipti innlent

Sjóðir í stýringu Eaton Vance selt stóran hlut í N1

Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifa
Hlutabréf í N1 hafa hækkað um ríflega 10 prósent í verði það sem af er ári.
Hlutabréf í N1 hafa hækkað um ríflega 10 prósent í verði það sem af er ári. Vísir/valgarður

Fjárfestingarsjóðir á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Eaton Vance hafa á síðustu vikum selt nærri fimm prósenta hlut í N1 fyrir hátt í 1,5 milljarða króna miðað við núverandi gengi hlutabréfa í olíufélaginu.

Sjóðir í stýringu Eaton Vance eru ekki lengur í hópi tuttugu stærstu hluthafa N1 samkvæmt nýjum hluthafalista, dagsettum 23. ágúst, sem birtist í nýútgefinni lýsingu olíufélagsins. Tveir sjóðir á vegum eignastýringarfyrirtækisins, annars vegar Global Macro Absolute Return Ad og hins vegar Global Macro Portfolio, áttu samanlagt tæplega fimm prósenta eignarhlut í N1 um miðjan júlímánuð en markaðsvirði hlutarins, miðað við núverandi gengi bréfa félagsins, er tæplega 1,5 milljarðar króna.

Kaupendur að hlutnum voru meðal annars fjárfestingarsjóðir á vegum Wellington Management, annars bandarísks eignastýringarfyrirtækis, en umræddir sjóðir fara nú samanlagt með 9,6 prósenta hlut í N1 að virði tæpra þriggja milljarða króna. Íslenski lífeyrissjóðurinn og sjóðir í stýringu Akta hafa einnig bætt við sig í olíufélaginu á undanförnum vikum.

Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa sjóðir á vegum Eaton Vance minnkað við sig í nokkrum skráðum félögum á síðustu vikum. Þannig seldu sjóðirnir samanlagt ríflega tveggja prósenta hlut í Icelandair Group fyrr í þessum mánuði en ætla má að söluverð hlutarins hafi verið rúmlega 900 milljónir króna ef miðað er við gengi hlutabréfa í ferðaþjónustufélaginu á þeim tíma þegar viðskiptin gengu í gegn. Kaupendur að bréfunum voru dreifður hópur fjárfesta.

Sjóðir Eaton Vance seldu sem kunnugt er ríflega hálf prósents hlut í TM í síðustu viku, en eftir viðskiptin fara þeir með um 4,7 prósenta hlut í tryggingafélaginu, og þá herma heimildir Markaðarins að sjóðirnir hafi einnig minnkað við sig í tryggingafélögunum Sjóvá og VÍS.

Á móti hafa sjóðirnir bætt lítillega við hlut sinn í Arion banka í sumar og þá tóku þeir þátt í nýafstöðnu skuldabréfaútboði Eikar fasteignafélags, eftir því sem heimildir Markaðarins herma, en Fossar markaðir höfðu umsjón með útboðinu.

Eaton Vance hefur á síðustu árum verið umsvifamesti erlendi fjárfestirinn á íslenskum hlutabréfamarkaði en félagið hóf innreið sína á markaðinn árið 2015.


Tengdar fréttir

Stoðir keyptu í Arion banka fyrir um milljarð

Stoðir eru stærstu íslensku einkafjárfestarnir með 0,6 prósent. Skráðu sig fyrir um 100 milljónum hluta en fengu 12 milljónir. Félagið Vogun, sem Kristján Loftsson og fjölskylda stýra, keypti í Arion banka fyrir um 600 milljónir króna.

Lækka verðmat sitt á TM

Greinendur ráðgjafafyrirtækisins Capacent hafa lækkað verðmat sitt á TM um ríflega sjö prósent og meta nú gengi hlutabréfa tryggingafélagsins á 32,2 krónur á hlut.

Eaton Vance seldi í Eimskip

Tveir sjóðir á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management seldu tæplega 1,9 milljónir hluta í Eimskip fyrir um 355 milljónir króna í síðustu viku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×