Innlent

Langþreytt á skólasetningum í miðri viku enda foreldrar löngu búnir með fríið sitt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir telur eðlilegra að skólahald hefjist á mánudegi og skólasetning sé að morgni dags, klukkan átta.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir telur eðlilegra að skólahald hefjist á mánudegi og skólasetning sé að morgni dags, klukkan átta. Vísir/Valli
Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, er fyrirmunað að skilja hvers vegna grunnskólar landsins eru ítrekað settir í miðri viku þegar engin námskeið eru í boði fyrir börnin. Skýtur hún fast á Reykjavíkurborg í þeim efnum.

Lausleg athugun blaðamanns leiddi í ljós að grunnskólarnir í höfuðborginni, Kópavogi og Akureyri eru settir um miðja næstu viku. Misjafnt er eftir aldri klukkan hvað að deginum skólasetningin fer fram en hún varir yfirleitt í um klukkustund.

„Því til viðbótar er dagurinn sem skólasetning er slitinn algjörlega í sundur. Foreldrar eru löngu búnir (með) öll frí fyrir árið vegna vetrarfría, starfsdaga og sumarfría og búin að laumast óendanlega oft úr vinnunni til að keyra börnin í allt sumar á milli námskeiða,“ segir Þorbjörg Helga.

„Að auki eru sjálf börnin komin með algjört ógeð á misgóðum og misdýrum sumarnámskeiðum - ef á annað borð foreldrar hafa haft efni á að senda þau.“

Nemendurnir ekki kúnnar

Þorbjörg spyr hvort ekki væri hægt að hefja skólastarf á mánudegi svo þetta komi ekki í hnakkann á foreldrum aftur og aftur.

„Og svo ég slái nú ykkur alveg út dauðrotuð, gætum við beðið um skólasetningu kl. 08 með börnum svo foreldrar komist í heilan vinnudag?“

Töluverð umræða hefur skapast um málið á Facebook-vegg Þorbjargar og taka flestir undir með henni. Hulda María Magnúsdóttir, grunnskólakennari í Foldaskóla, bendir þó á tvennt sem hún geri athugasemd við.

Annars vegar að skóli sé menntastofnun, ekki þjónustustofnun. Því eigi ekki að tala um þjónustu og notendur. Hins vegar séu nemendur hennar, og foreldrar þeirra, ekki kúnnar. 

Fréttastofa hefur sent fyrirspurn á Reykjavíkurborg, Akureyri og Kópavog varðandi ástæður þess að skólahald hefjist í miðri viku.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×