Erlent

Handtekinn vegna hvarfs eiginkonu og dætra sinna

Bergþór Másson skrifar
Chris Watts, meintur morðingi fjölskyldu sinnar.
Chris Watts, meintur morðingi fjölskyldu sinnar. CBS
Fjölskyldufaðir í Colorado fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn í tengslum við hvarf tveggja dætra sinna og eiginkonu.

Breska Ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn, Chris Watts, hafi játað morð fjölskyldunnar sinnar á sig.

Eiginkona hans, Shanann Watts var ólétt og komin 15 vikur á leið þegar tilkynnt var um hvarf hennar á mánudaginn. Dætur þeirra eru þriggja og fjögurra ára gamlar.

Á blaðamannafundi í Colorado í dag var sagt frá því að lögreglan hafi að öllum líkindum fundið lík eiginkonu mannsins og að sterkur grunur liggi fyrir um staðsetningu dætranna.

Hér má sjá viðtal við Chris Watts við Denver7 fréttastofuna um málið frá því í fyrradag, áður en hann á að hafa játað á sig morðið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×