Erlent

Trump segir Evrópusambandið „óvin“ Bandaríkjanna

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Trump í opinberri heimsókn í Bretlandi í vikunni. Hann hefur dvalið í Skotlandi síðan á föstudag og spilað þar golf.
Trump í opinberri heimsókn í Bretlandi í vikunni. Hann hefur dvalið í Skotlandi síðan á föstudag og spilað þar golf. Vísir/Getty
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Evrópusambandið „óvin“ Bandaríkjanna. Þetta er haft eftir forsetanum í viðtali fréttamannsins Jeff Glor á CBS-sjónvarpsstöðinni sem sýnt var í dag.

Trump var inntur eftir því hver væri helsti óvinur Bandaríkjanna á alþjóðavísu um þessar mundir og sagðist forsetinn telja að Bandaríkin ættu sér fjölmarga óvini.

„Mér finnst Evrópusambandið vera óvinur, það sem þau gera okkur í viðskiptum. Þér myndi ekki detta Evrópusambandið í hug en það er óvinur,“ sagði Trump. Hann bætti þó við að það þýddi ekki að Evróusambandið væri „slæmt“ heldur að það væri samkeppnishæft.

Sjá einnig: Trump sagði May að draga ESB fyrir dómstóla vegna Brexit

Glor benti þá á að mörgum þætti eflaust einkennilegt að heyra Trump nefna Evrópusambandið á undan Rússlandi og Kína í þessu samhengi.

Forsetinn ítrekaði þá að hann álliti Evrópusambandið óvin vegna viðskiptastefnu þess og að sambandið hefði haft Bandaríkin að féþúfu. Þá bað hann Glor að gleyma því ekki að báðir foreldrar hans væru fæddir í Evrópusambandsríkjum, móðir hans í Skotlandi og faðir hans í Þýskalandi.

Hið síðarnefnda virðist þó ekki alveg rétt, þar eð faðir Bandaríkjaforseta, Fred Trump, fæddist í New York-borg árið 1905. Foreldrar hans, amma og afi forsetans, voru hins vegar þýskir innflytjendur.

Svar Trumps hefur einkum vakið athygli vegna þess að það virðist nokkuð á skjön við utanríkisstefnu ríkisstjórnar hans. Í janúar 2017 var ný varnarmálastefna ríkisins kynnt en hún beindist að mestu að því að sporna gegn áhrifum Kína og Rússlands.

Viðtal Jeff Glor við Donald Trump Bandaríkjaforseta má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Trump vekur reiði Breta með því að hlamma sér í stól Churchills

"Þú móðgaðir þjóðina, réðst á heilbrigðiskerfið okkar, lést drottninguna fara hjá sér, grófst undan sérstaka milliríkjasambandinu, niðurlægðir forsætisráðherrann okkar... og svo sest þú yfirlætisfullur og lætur taka mynd af þér í hægindastól Winstons Churchill!“ – svona hefst grein breska dagblaðsins The Mirror sem er einn reiðilestur yfir Donald Trump Bandaríkjaforseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×