Lífið

Kim Kardashian seldi fyrir hálfan milljarð á fimm mínútum

Sylvía Hall skrifar
Kim Kardashian er enginn nýgræðingur þegar kemur að markaðssetningu, sem greinilega virkar.
Kim Kardashian er enginn nýgræðingur þegar kemur að markaðssetningu, sem greinilega virkar. Vísir/Getty
Kim Kardashian sendi frá sér nýjan ilm í gær sem hefur slegið rækilega í gegn, en á fimm mínútum seldi Kardashian ilmvötn fyrir rúmlega hálfan milljarð.

Ilmvatnið er selt á rúmlega 5 þúsund krónur stykkið og notaðist Kardashian eingungis við samfélagsmiðla þegar kom að því að markaðsetja nýja ilminn. Ilmvatnið kemur í þremur útgáfum og eiga þær það sameiginlegt að lykta af ávöxtum, en umbúðirnar eru einmitt í formi ávaxta.





Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem snyrtivara frá raunveruleikastjörnunni slær í gegn, en snyrtvörulína sem hún sendi frá sér í fyrra skilaði stjörnunni rúmlega einum og hálfum milljarði þegar hún kom fyrst á markað.



 
The limited edition Kimoji perfumes available now on KKWFRAGRANCE.COM

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on Jul 18, 2018 at 6:20am PDT












Fleiri fréttir

Sjá meira


×