Aron Can í víking til Noregs Bergþór Másson skrifar 2. júlí 2018 21:45 Ungstirnið Aron Can í góðum gír. Vísir/ernir
Rapparinn Aron Can spilaði á tónleikum í Harstad í Noregi um helgina. Þetta er í þriðja skipti sem hann kemur fram í Noregi en tónlist hans hefur notið mikilla vinsælda þar. Aron er eflaust flestum íslenskum tónlistarunnendum kunnugur, en hann hefur verið einn af fremstu tónlistarmönnum Íslands núna í um tvö ár þrátt fyrir að vera einungis 18 ára gamall. Í byrjun sumars gaf hann út plötuna Trúpíter í gegnum Sticky Records með dreifingu frá Sony. „Það er geggjað að fara út og kynnast fólki og spila fyrir fólk sem hefur aldrei heyrt í þér áður og hafa actually áhuga á tónlistinni“ segir Aron í samtali við Vísi.Á leið út fyrir landsteina Aron segist stefna á að halda áfram að koma fram erlendis og að tónleikarnir í Harstad marki upphafið á útrás sinni. „Ég á mér stóra drauma, ég mun bara halda áfram að elta þá,“ segir Aron. Aron segir að það sé ótrúlega gaman að spila úti en að það sé langt frá því að vera auðvelt. „Þetta er algjör keyrsla sko, maður er ekkert í fríi, maður er að vinna á fullu, ég er á æfingu allan daginn og fer svo að sofa, þetta er eins og langur vinnudagur.“ Fiesta A post shared by Aron Can (@aroncang) on Jun 4, 2018 at 8:06am PDTHeimsklassa tónlistargrafík Myndlistarmaðurinn Elí hefur farið út með Aroni til Noregs öll þrjú skiptin til þess að meðhöndla grafíska hluta tónleikanna. Elí var ánægður með ferðina og segir í samtali við Vísi að tónleikar Arons í Harstad hafi verið „100% þeir bestu sem ég hef séð honum“ Elí hefur einnig búið til tónlistargrafík fyrir Sturla Atlas, Flona og Joey Christ, til að nefna nokkra. Grafík hans fyrir Aron hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og má sjá brot af henni á Instagram síðu Elí. live visuals for @aroncang A post shared by Elí (@agusteli) on Jul 1, 2018 at 5:06am PDTEins og Vísir greindi frá í byrjun árs skrifaði Aron undir dreifingarsamning við Sony, en það tengist þessari tónleikaför þó ekki. Aron var bókaður til Noregs í gegnum aðalsöngvara hljómsveitarinnar „The Band Called O.“ Hægt er að sjá kynningarmyndband fyrir tónleikana þar sem Aron Can kemur fram ásamt „The Band Called O“ hér að neðan. Frumraun Arons með hljómsveit Þetta var í fyrsta skipti sem Aron kemur fram ásamt hljómsveit, en hann er vanur því að notast einungis við plötusnúð þegar hann spilar á tónleikum hérlendis. Aðspurður hvernig það sé að koma fram með undirspili frá alvöru hljómsveit segir Aron: „Þegar maður er einn uppi á sviði á Íslandi þá snýst þetta bara um að turna upp og hafa fólk dansandi hoppandi og öskrandi. Þetta var svo sérstakt að halda tónleika með hljómsveit. Þetta er 100% eitthvað sem mig langar til að vinna meira með.“ Aron er að spila út um allt land það sem eftir er sumars og bætir við í lok samtals við fréttamann að það sé aldrei að vita hvort að aðdáendur Arons fái ekki að heyra nýja tónlist frá honum á næstunni, þrátt fyrir að hann hafi gefið út fimmtán laga plötu um daginn. „Sticky Records sofa aldrei, það er nóg framundan“ segir hann að lokum.
Tónlist Tengdar fréttir Aron Can semur við Sony Rapparinn Aron Can hefur samið við plöturisann Sony. Líklegt er að Aron fái að hljóma víðar en hér á landi á næstunni. Hann segist vera í skýjunum með samninginn og hlakkar til að stíga næsta skref. 3. febrúar 2018 07:00 Mest lesið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Lífið Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Fögnuðu ekki bara plötunni með Júlí Heiðari heldur lífinu sjálfu „Fór langt fram úr mínum björtustu vonum“ Draumkennd framtíðarvitrun frá heitustu danssveit landsins Átján ára og stefna langt Súperstjörnur landsins fögnuðu með GDRN Hlustendaverðlaunin 2024: Þegar Sveppi og Ásgeir Orri mættu óvænt á sviðið Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn Hlustendaverðlaunin 2024: Barnakór tók undir með XXX Rottweiler Níu bónorðsbréf til sömu konunnar innblásturinn að nýjustu plötunni Hlustendaverðlaunin 2024: Tónlistaratriðin sem slógu í gegn Myndaveisla: Margt um dýrðir á Hlustendaverðlaunum 2024 Galið að geyma lagið í skúffunni Frumsýnir nýtt myndband: Auður orðinn Luthersson Selur tösku og eitt eintak af nýrri plötu á eina milljón Súrrealískt að djamma með Zöru Larsson Sigur Rós endar túrinn með Elju í Hörpu Vampíra vann Músíktilraunir Númer 3 en stefna á toppinn Patr!k og Laufey meðal handhafa Íslensku tónlistarverðlaunanna Jói Pé og Króli snúa aftur Fer á tónleika um allan heim og hangir með stórstjörnu All By Myself-söngvarinn Eric Carmen látinn Elíta íslenska rappsins tryllti lýðinn í Iðnó „Ég var í mörg ár að fá sjálfa mig til baka“ Frumsýning: Rándýr í aðalhlutverki í nýju tónlistarmyndbandi Langar að breyta senunni og koma inn með jákvæðnina Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2024 Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna GKR gefur út nýja plötu: „Ég er ekki eins og ég var þegar ég var yngri“ Skrifaði undir draumasamninginn og hlakkar til að spila erlendis Sjá meira
Aron Can semur við Sony Rapparinn Aron Can hefur samið við plöturisann Sony. Líklegt er að Aron fái að hljóma víðar en hér á landi á næstunni. Hann segist vera í skýjunum með samninginn og hlakkar til að stíga næsta skref. 3. febrúar 2018 07:00