Skoðun

Nýjum áföngum fagnað

Anna Stefánsdóttir og Oddný Sturludóttir skrifar
Mikilvægum áföngum í byggingu nýs Landspítala við Hringbraut var náð í þessari viku. Þá voru opnuð tvö tilboð vegna framkvæmda við Hringbrautarverkefnið. Annars vegar tilboð í gatnagerð og jarðvinnu vegna framkvæmda við meðferðarkjarna spítalans, sem oft er kallaður hjartað í starfsemi spítalans og hins vegar tilboð í fullnaðarhönnun rannsóknarhúss. Öll voru þessi tilboð undir kostnaðaráætlun.

Meðferðarkjarninn er stærsta og flóknasta framkvæmd Hringbrautarverkefnisins. Með tilkomu hans verður mikil og jákvæð breyting á aðstöðu sjúklinga, aðstandenda þeirra og starfsfólks. Þar verður öll bráðastarfsemi spítalans, 210 legurými, sem öll verða á einbýlum, auk þess sem rýmum fjölgar á gjörgæslu- og móttökudeild. Hönnun meðferðarkjarnans er á lokametrunum, stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2019 og að byggingarnar verði tilbúnar á árunum 2023-2024.

Bygging rannsóknahúss er annað stórt verkefni, það mun hýsa rannsóknarstofur spítalans, þar með talinn er Blóðbankinn. Það verður breyting til batnaðar þegar rannsóknastarfsemi Landspítala sameinast undir einu þaki í stað þess að dreifast í 16 byggingar hér og þar í borginni.

Nýtt sjúkrahótel

Nýtt sjúkrahótel hefur þegar risið á Hringbrautarlóðinni og verður tekið í notkun innan skamms. Það er mikið fagnaðarefni og bylting í þjónustu Landspítala, sérstaklega fyrir fólk af landsbyggðinni. Á sjúkrahótelinu verða 75 vel búin herbergi, þar á meðal sérstakt fjölskyldurými. Víða á Norðurlöndunum er góð reynsla af sjúkrahótelum á lóðum sjúkrahúsa.

Oddný Sturludóttir

„Þörfin kallar hærra með hverju ári“

Þessi orð mælti Ingibjörg H. Bjarnason árið 1923 úr ræðustól Alþingis en Ingibjörg var ein aðaltalskona „Landspítalamálsins“ eins og það var kallað og borið uppi af þeim konum sem settust fyrstar á Alþingi og voru með sanni óþreytandi í baráttu sinni fyrir byggingu Landspítala. Ingibjörg var orðin langeyg eftir ákvörðun stjórnvalda um að leggja fé til spítalabyggingar og segja má að orð hennar eigi jafn vel við árið 2018.

Uppbygging Landspítala er gríðarlegt hagsmunamál fyrir þjóðina alla, framþróun í heilbrigðisþjónustu, öryggi sjúklinga og vinnuumgjörð starfsfólks. Í stjórnarsáttmála og ríkisfjármálaáætlun sitjandi ríkisstjórnar er uppbygging Landspítala við Hringbraut gerð að forgangsmáli. Fyrri ríkisstjórnir hafa einnig staðið myndarlega við bakið á uppbyggingunni, í raun allar ríkisstjórnir frá aldamótum, frá því fyrst að uppbygging spítalans við Hringbraut komst á dagskrá. Þá hefur borgarstjórn og Reykjavíkurborg ávallt stutt dyggilega við uppbyggingaráformin. Þessu ber að fagna, en einnig er mikilvægt að fagna hverjum áfanga í uppbyggingu Landspítala við Hringbraut.

Landssamtökin Spítalinn okkar leggja áherslu á að engar tafir verði á þessu mikilvæga verkefni. Þörfin kallar hærra með hverju ári vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar, örra tækniframfara og þeirrar sjálfsögðu kröfu landsmanna að geta treyst á framúrskarandi og örugga heilbrigðisþjónustu fyrir sig og ástvini sína.

Höfundur er stjórnarmeðlimir Spítalans okkar




Skoðun

Sjá meira


×