Erlent

Áfram er óvissa um stöðu 2.300 barna

TG skrifar
Ung kona situr með syni sínum Jaydan hjá kaþólskum góðgerðarsamtökum  í gær eftir að hafa farið yfir landmærin frá Mexíkó.
Ung kona situr með syni sínum Jaydan hjá kaþólskum góðgerðarsamtökum í gær eftir að hafa farið yfir landmærin frá Mexíkó. Vísir/Getty
 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, undirritaði á miðvikudag forsetatilskipun sem kveður á um að hætt verði að skilja börn ólöglegra innflytjenda frá fjölskyldum sínum.

Tilskipunin tók strax gildi. Þetta þýðir að börnin verða því með foreldrum sínum þegar þeir eru sóttir til saka. Nú þegar hafa yfir 2.300 börn verið aðskilin frá foreldrum sínum og hefur stór hluti þeirra þurft að dúsa í búrum.

Við undirritunina sagði Trump að þó svo að fjölskyldur yrðu ekki lengur aðskildar myndu stjórnvöld ekkert draga úr hörku gagnvart ólöglegum innflytjendum.

„Við verðum að vera með öfl­ug, mjög öfl­ug landa­mæri, en við verðum að halda fjöl­skyld­um sam­an,“ sagði Trump.

Tilskipun Trumps nær hins vegar ekki til þeirra barna sem þegar hafa verið aðskilin frá foreldrum sínum og því er alls óljóst hvað verður um þau. Trump er mikið gagnrýndur vestanhafs fyrir að vera ekki með skýrar aðgerðir til þess að hjálpa þeim börnum. Sjálfur er forsetinn áfram í ham og sakar hann Demókrata um að vilja að hælisleitendur fái betri þjónustu heldur en Bandaríkjamenn.

Sjá einnig: Fataval Melaniu vekur furðu



Í gær flaug Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, óvænt til Texas til að skoða sjálf ástandið við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Haft er eftir forsetafrúnni að hún hafi viljað sjá þetta með eigin augum. Hún þakkaði öllu starfsfólkinu fyrir vel unnin störf.

Framganga Donalds Trump í þessu máli er býsna óhefðbundin. Um leið og málið komst upp á yfirborðið voru fyrstu viðbrögð Trumps að hann gæti ekkert gert í þessu, sem skýtur skökku við núna.

Í kjölfarið stóðu öll spjót á Trump sem á endanum ákvað að gefa eftir. Hann lét félaga sína í Repúblikana­flokknum ekki vita að hann ætlaði að gefa tilskipunina út, talsmenn hans og stuðningsmenn voru þá búnir að vera úti um allt við að verja aðgerðirnar.

Margir telja að Trump sé að nota þetta mál til þess að knýja á um að reistur verði veggur við landamærin. Hann verður að hafa hraðar hendur í því máli, því kosið verður til þings í nóvember. Alls óvíst er hvort Repúblikanar muni halda meirihluta í þinginu að þeim loknum miðað við skoðanakannanir vestanhafs.


Tengdar fréttir

Fataval Melaniu vekur furðu

Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna klæddist jakka með áletruninni "I really don't care, do u?” í dag þegar hún ferðaðist til McAllen í Texas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×