Lífið

Nokkur slæm pólitísk tískuslys

Melania Trump segist ekki hafa meint neitt illt með því að klæðast jakka með áletruninni „Mér er í raun alveg sama, hvað með þig?“ þegar hún heimsótti flóttamannabúðir fyrir börn sem hafa verið aðskilin frá foreldrum sínum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem klæðaval hefur pólitískar afleiðingar.

Gunnar Hrafn Jónsson skrifar
Á jakka Melaniu voru skilaboð sem auðveldlega mátti misskilja Vísir/Getty
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, uppskar mikla reiði fyrir að klæðast jakka með áletruninni: „Mér er í raun alveg sama, hvað með þig?“ þegar hún heimsótti flóttamannabúðir fyrir börn sem hafa verið aðskilin frá foreldrum sínum.

Talskona Melaniu sagði að það hafi verið hrein tilviljun að hún valdi þennan jakka við þetta tilefni, þetta hafi bara verið eitthvað sem hún fann í fataskápnum. Fréttaskýrendur segja það áhugavert í ljósi þess að flíkin kostar aðeins 39$ dollara og var sett á markað af tískukeðjunni Zöru í fyrra.

Donald Trump forseti og eiginmaður Melaniu sagði hins vegar á Twitter að það væri ekki rétt að jakkinn hafi verið handahófskennt val. Þvert á móti hafi Melania verið að senda sterk skilaboð til almennings um að trúa ekki því sem stendur í fjölmiðlum. Samhengið er ekki öllum augljóst, sérstaklega þar sem forsetahjónin eru nú tvísaga.

En þetta er ekki í fyrsta sinn sem fataval eða tíska veldur leiðtogum vandræðum.

Aðeins of langt gengið hjá Trudeau?Vísir/EPA

Justin Trudeau

Forsætisráðherra Kanada, var að eigin sögn bara að reyna að sýna aðdáun sína á indverskri menningu í opinberri heimsókn sinni til Indlands fyrr á árinu.

Mörgum þótti Trudeau hins vegar ganga full langt þegar hann klæddi sig og alla fjölskyldu sína upp í nokkrar mismunandi indverskar múnderingar áður en þau spókuðu sig í ferðinni. Á sumum myndum mátti sjá Trudeau og fjölskyldu í fullum skrúða á meðal Indverja sem sjálfir voru í látlaus jakkaföt. Voru hjónin sökuð um að vera í búningaleik í ferðinni.

Líkindin eru svo ótrúleg að sumir neita að trúa að um tilviljun hafi verið að ræðaVísir/Twitter

Katrín hertogaynja

Á dögunum stóð Katrín, hertaogaynja af Cambridge, á tröppunum fyrir utan fæðingadeildina með þriðja barn hennar og Vilhjálms Bretaprins. Einhverjum fannst kjóll hennar kunnuglegur við fyrstu sýn.

Þegar betur var að gáð reyndist Katrín klædd í svo gott sem nákvæmlega eins kjól o aðalpersónan í hryllingsmyndinni Rosemary‘s Baby. Söguþráður myndarinnar gengur út á að Rosemary, sem er leikin af Miu Farrow, er nauðgað af djöflinum og gengur með andkrist undir belti.

Ekki bestu hugrenningartengsl sem hægt er að hugsa sér við þetta tækifæri.

Þjóðin beið þess sennilega aldrei bætur að hafa séð forseta sinn svona til faraVísir/Getty

Barack Obama

Síðasti Bandaríkjaforseti sætti oft harðri gagnrýni fyrir hluti sem virtust smávægilegir fyrir utanaðkomandi.

Sem dæmi má nefna ljósbrún jakkaföt sem Obama vogaði sér að klæðast opinberlega árið 2014. Repúblikanar og fréttastöðin Fox News gagnrýndu fatavalið harðlega og sögðu það til marks um að forsetinn tæki hlutverk sitt ekki alvarlega. Þá væri það vanvirðing við fallna hermenn og hvaðeina.





 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Fyrrverandi forsætisráðherra Íslands lendir á listanum fyrir einskæra óheppni.

Sigmundur í sínum ósamstæðu skómVísir
Svo illa vildi til árið 2013 að vinstri fótur Sigmundar bólgnaði upp vegna sýkingar rétt áður en hann átti að ganga á fund Barack Obama Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu ásamt öðrum leiðtogum Norðurlandanna.

Sigmundur ætlaði að vera í lakkskóm en vegna bólgunnar komst hann ekki lengur í vinstri skó sinn og því var brugðið á það ráð að senda aðstoðarmann út í búð til að kaupa rúmgóða og þægilega strigaskó.

Af einhverjum ástæðum ákvað hann samt að vera áfram í hægri skónum og mætti því á fundinn í ósamstæðum skóm sem vakti athygli.

Karl Gústaf er kannski heppinn að hafa ekki fæðst á þeim tíma þegar þetta var daglegur fatnaðurSVT

Karl Gústaf Svíakonungur

Kóngurinn ákvað að setja upp víkingahjálm við opnun sögusafns um víkingaöldina. Þótti kóngsi heldur afkáralegur með höfuðfatið.

Þjóðarmussa Perú fór forsetanum ekki alveg nógu vel.Vísir/EPA

George W. Bush

Bush var svo óheppinn að koma oft kjánalega fyrir á ljósmyndum. Það var sérstaklega áberandi þegar hann sótti APEC fundi, þar sem hefðin er að þjóðarleiðtogar klæðist hefðbundnum klæðnaði gestgjafanna.

Kínaföt Bush þóttu alveg nógu spes en steininn tók úr þegar hann leit út eins og mexíkóskur bandíti í þjóðarmussu Perú.

Þessi ljósmynd þótti einfaldlega svo kjánaleg að enginn treysti sér til að kjósa Dukakis.Vísir/Wikimedia

Mike Dukakis

Ein ljósmynd gerði út af við stjórnmálaferil Dukakis, sem atti kappi við George Bush eldri í forsetakosningunum 1988. Hann var eins og álfur út úr hól með hermannahjálm í skriðdreka.



Björn Leví Gunnarsson

Ástæðan fyrir skóleysi Björns er að honum verður of heitt að sitja jakkaklæddur í þingsalnum en það verður þolanlegt ef skórnir eru teknir af.Vísir/Ernir Eyjólfsson
Kollegi Björns á þingi, hinn síkáti Brynjar Níelsson, upplýsti þjóðina um að Björn væri oft skólaus í þingsalnum. Hann ætti það til að flytja ræður úr pontu Alþingis á sokkaleistunum.

Þjóðin saup hveljur og Brynjar líkti Pírötum almennt við niðursetninga.

Dæmi eru um að þingmenn hafi verið sendir heim til að skipta um föt. Það kom fyrir Elínu Hirst, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem mætti í gallabuxum og var beðin um að fara ekki inn í þingsalinn í slíkum klæðnaði.


Tengdar fréttir

Fataval Melaniu vekur furðu

Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna klæddist jakka með áletruninni "I really don't care, do u?” í dag þegar hún ferðaðist til McAllen í Texas.

Óvíst hvað verður um börnin

Það er alls óvíst hvað verður um þau 2.300 börn sem yfirvöld skildu frá foreldrum sínum á síðustu vikum.






×