Fótbolti

Íslensk glíma í skýfalli á æfingu strákanna | Myndasyrpa

Tómas Þór Þórðarson í Kabardinka skrifar
Þorgrímur Þráinsson, landsliðsnefndarmaður, og Víðir Reynisson, öryggisstjóri landsliðsins, tóku á því í íslenskri glímu en náðu ekki að fella hvor annan.
Þorgrímur Þráinsson, landsliðsnefndarmaður, og Víðir Reynisson, öryggisstjóri landsliðsins, tóku á því í íslenskri glímu en náðu ekki að fella hvor annan. vísir/vilhelm
Strákarnir okkar æfðu í grenjandi rigningu í Kabardinka í dag eftir tapið á móti Nígeríu. Þeir lentu um miðnætti og voru mættir klukkan 11.00 að staðartíma á æfinguna eftir góðan nætursvefn.

Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason æfðu ekki í dag en þeir voru í meðhöndlun upp á hóteli. Þeir sem að spiluðu leikinn í gær tóku því rólega á meðan varamennirnir voru látnir hafa fyrir því og hoppa í pollum.

Eitt af skemmtilegri atvikum dagsins átti sér stað fyrir æfinguna þegar að Þorgrímur Þráinsson, landsliðsnefndarmaður, og Víðir Reynison, öryggisstjóri, spreyttu sig í íslenskri glímu en náðu ekki að fella hvorn annan.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var með vélina á lofti í rigningunni í dag og tók myndirnar sem má sjá hér að ofan og neðan.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.

Aron Einar Gunnarsson reimar skóna inn í varamannaskýli og skýlir sér frá rigningunni.vísir/vilhelm
Björn Bergmann Sigurðarson vindur úr vesti sínu vegna bleytu.vísir/vilhelm
Starfsfólk vallarins var mætt í ponsjóum.vísir/vilhelm
Heimir Hallgrímsson skilur ekkert í þessari rigningu.vísir/vilhelm
Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari fer yfir gærdaginn með Hannesi Þór Halldórssyni.vísir/vilhelm
Víðir Reynisson öryggisstjóri reynir hælspyrnu með misjöfnum árangri.vísir/vilhelm
Hopp í polla.vísir/vilhelm
Heimir spjallar við strákana fyrir æfingu í dag.vísir/vilhelm

Tengdar fréttir

Pétur Örn flýgur heim í aðgerð

Einn fjögurra sjúkraþjálfara karlalandsliðsins í knattspyrnu hélt í dag til Íslands til að fá bót meina sinna eftir hjólreiðaslys á mánudaginn.

Hannes um hitann: Ég var alltaf þyrstur

Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson segir að eðlilega hafi hitinn í Volgograd í gær haft áhrif á leik liðsins gegn Nígeríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×