Lífið

Faðir Michael Jacksons með ólæknandi krabbamein

Bergþór Másson skrifar
Joe Jackson, 89 ára gamall.
Joe Jackson, 89 ára gamall. Vísir/Getty
Joe Jackson, faðir Michaels og Janet Jackson, er á síðustu stigum ólæknandi krabbameins. Talið er að hann eigi ekki mikið eftir ólifað. Slúðurmiðillinn TMZ greinir frá því.

Joe Jackson er 89 ára og er faðir ellefu barna.

Hann var þekktur fyrir það að gera miklar kröfur til þeirra allra.

Joe var arkítekt hljómsveitarinnar Jackson 5 og spilaði stórt hlutverk í uppgöngu stórstjörnunnar og sonar síns, Michael Jackson.


Tengdar fréttir

Flytur inn Michael Jackson sýningu frá New York

Yesmine Olsson mun heiðra minningu Michael Jackson með stórsýningu í Hörpu þann 8. september nk. 18 söngvarar og dansarar koma fram og tveir skipta með sér hlutverki Jackson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×