Erlent

Vonbrigði að Íslendingar hafi ekki þegið heimboðið

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hefur verið gagnrýndur fyrir stefnu sína í fíkniefnamálum.
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hefur verið gagnrýndur fyrir stefnu sína í fíkniefnamálum. Vísir/AFP
Fulltrúi Filippseyja á mannréttindaþingi Sameinuðu þjóðanna fór hörðum orðum um Íslendinga og þær 37 aðrar þjóðir sem gagnrýndu ástand mannréttindamála á eyjunum á þinginu.

Þetta er í annað sinn á undanförnum 9 mánuðum sem stjórnvöld í Manilla senda Íslendingum tóninn vegna gagnrýni sinnar.

Í yfirlýsingu sem fulltrúi Íslands las upp á mannréttindaþinginu, sem haldið var í New York í liðinni viku, var stefna filippeyskra stjórnvalda í fíkniefnamálum hörmuð. Þúsundir vímuefnaneytenda hafa verið teknir af lífi án dóms og laga á því rúma ári sem forseti eyjanna, Rodrigo Duterte, hefur rekið harða stefnu sína í málaflokknum. Í yfirlýsingunni er kallað eftir því að stefnunni verði breytt, þannig að hún taki mið af alþjóðlegum mannréttindasáttmálum, og rannsóknir á dauðsföllum neytendanna verði til lykta leiddar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sendinefnd Íslands á mannréttaþinginu beinir spjótum sínum að Filippseyjum. Það gerði hún einnig þegar þingið var haldið í Genf í september í fyrra, eins og Vísir greindi frá á sínum tíma.

Á þinginu um helgina, rétt eins og í Genf á síðasta ári, sagði fulltrúi Filippseyja að afstaða Íslendinga væri mikil vonbrigði, hlutdræg og tilhæfulaus. Stjórnvöld í Manilla hefðu boðið Íslendingum til landsins þannig að þeir gætu sjálfir gengið úr skugga um stöðu mannréttindamála á Filippseyja. Það boð hefðu íslensk stjórnvöld ekki þegið.

Sjá einnig: Gaf lítið fyrir gagnrýni íslensku hræsnaranna

„Því miður virðast vinir okkar ekki hafa mikinn áhuga á sannleikanum og vilja heldur reiða sig á villand upplýsingar,“ er haft eftir utanríkisráðherra Filippseyja, Alan Peter Cayetano, á vef kínverska ríkismiðilsins Xinhua.

Í andsvari sínu benti fulltrúi Filippseyja á að ferill Íslendinga í mannréttindamálum væri ekki flekklaus - og nefndi móttöku flóttamanna máli sínu til stuðnings. Það væri niðurlægjandi fyrir hin þróuðu ríki heimsins að þriðji heimurinn tæki á móti um 80% allra flóttamanna heimsins.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherrVísir/egill
Eftir gagnrýnina Íslendinga í Genf í fyrra beindu Filippseyjar kastljósi sínu að fóstureyðingum á Íslandi. Þá hafði CBS-sjónvarpsstöðin nýlega birt umtalaða umfjöllun sína um Downs-heilkennið á Íslandi, en fá börn fæðast hér á landi með heilkennið.

Í samtali við mbl segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, að viðbrögð Filippseyinga komi sér ekki á óvart. Þeir hafi áður hnýtt í Íslendinga, sem fyrr segir. Hann segir að sama skapi að viðbrögð þeirra muni ekki verða til þess að Íslendingar breyti stefnu sinni í málaflokknum á alþjóðavettvangi.

Þar að auki segir Guðlaugur að heimboð stjórnvalda í Manilla skipti engu máli. Gagnrýnin lúti að því að þau starfi með alþjóðasamtökum og veiti þeim aðgengi að landinu. Það sé hreinlega of mikið af mannréttindabrotum í heiminum til að einn ráðherra Íslands geti tekið þau öll út.


Tengdar fréttir

„Verum Bandaríkin, ekki Ísland“

Talsmaður samtaka sem berjast fyrir réttindum fólks með Downs-heilkenni flutti tilfinningaþrungna ræðu fyrir bandarískri þingnefnd á dögunum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×