Svíar unnu Suður-Kóreumenn á VAR-víti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andreas Granqvist fagnar sigurmarki sínu.
Andreas Granqvist fagnar sigurmarki sínu. Vísir/Getty
Svíar hafa ekki byrjað betur á HM í 60 ár eftir að liðið vann 1-0 sigur á Suður Kóreu í fyrsta leik sínum á HM í fótbolta í Rússlandi í dag.

Þetta er í fyrsta sinn síðan að HM fór fram í Svíþjóð 1958 þar sem sænska landsliðið vinnur sinn fyrsta leik á heimsmeistaramóti.

Sigurmark Svía kom úr vítaspyrnu á 65. mínútu leiksins. Það skoraði fyrirliði Svía, Andreas Granqvist, af miklu öryggi.  

Joel Aguilar, dómari leiksins, dæmdi ekki víti í fyrstu þegar Kim Min-Woo felldi Viktor Claesson klaufalega en fékk síðan skilaboð frá myndbandadómurum. Aguilar skoðaði atvikið og dæmdi svo víti.

Þetta var þriðja VAR-vítið á þessu heimsmeistaramóti en alls gafa verið dæmdar sjö vítaspyrnur í fyrstu tólf leikjuunum.

Svíarnir voru búnir að vera miklu betri þegar kom að vítaspyrnudómnum en voru búnir að fara illa með nokkur góð færi á fyrsta klukkutímanum og þá sérstaklega Marcus Berg.

Kóreumenn byrjuðu leikinn af miklum krafti en þeir komust lítið áleiðis gegn sterkri vörn Svía og sænska liðið tók síðan öll völd á leiknum.

Eftir að Svíar komust yfir þá spiluðu þeir af skynsemi og tóku ekki mikla áhættu í sinum leik. Kóreumenn reyndu að pressa á lokamínútunum en sköpuðu sér lítið sem ekkert þar til í uppbótartíma.

Hwang Hee-Chan á átti þá skalla úr miðjum teignum en hitti ekki markið. Það var það næsta sem lið Suður Kóreu komst því að skora og sigur Svía var aldrei í mikilli hættu.

Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur ekki síst eftir að Mexíkó vann Þýskaland í hinum leik riðilsins. Svíar eru því á toppi riðilsins með Mexíkó.









Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira