Viðskipti innlent

Þriggja milljarða króna gjaldþrot eftir útrás Pennans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nýir eigendur Pennans ræða við starfsfólk árið 2005. Kristinn Vilbergsson forstjóri er lengst til hægri á myndinni og Gunnar Dungal, sem þá seldi Pennann, annar frá hægri.
Nýir eigendur Pennans ræða við starfsfólk árið 2005. Kristinn Vilbergsson forstjóri er lengst til hægri á myndinni og Gunnar Dungal, sem þá seldi Pennann, annar frá hægri. Vísir/GVA
Engar eignir fundust í þrotabúi AN Holding, félags í eigu Pennans, sem tekið var til gjaldþrotaskipta í febrúar. Fram kemur í Lögbirtingarblaðinu í dag að kröfur í þrotabúið hafi numið tæplega 3,2 milljörðum króna.

AN Holding tengdist fjárfestingum Pennans á erlendri grundu á árunum fyrir og í kringum hrun. Félagið var stofnað árið 2006 en það ár festu eigendur Pennans kaup á 73 prósenta hlut í lettneska rekstrarvörufyrirtækinu AN Office (Aigas Nams).

Í frétt Vísis frá 2006, sem unnin var upp úr tilkynningu frá Pennanum, sagði að AN Office væri þriðja stærsta rekstrarfyrirtækið á Eystrarsaltssvæðinu með 1,5 milljarða króna veltu árið 2005.

Kristinn Vilbergsson, þáverandi forstjóri Pennans, sagði kaupin góðan byrjunarreit fyrir Pennann til að sækja inn á nýja markaði.

Í framhaldinu sótti Penninn mjög á Eystrarsaltsmarkað og Norðurlöndin. Penninn keypti finnska fyrirtækið Tamore sem sérhæfði sig í sölu og dreifingu á skrifstofuvörum en ársveltan á þeim tíma nam tveimur milljörðum hjá finnska fyrirtækinu. Þá keypti Penninn lettneska kaffiframleiðandann Melna Kafija í samstarfi við Te&kaffi sama ár og í framhaldinu allt hlutafé í rekstrarvörukeðjunni Daily Service sem var stórt í Eistlandi, Lettlandi og Litháen.

Fram kemur í frétt Mbl.is að í ársbyrjun 2009 hafi 2500 manns starfað hjá fyrirtækinu í sjö löndum. Reksturinn var þá orðinn erfiður og tók Nýi Kaupþing banki yfir rekstur Pennans af þeim sökum. Skilanefnd Sparisjóðabankans tók félagið AN Holding yfir árið 2016. Var það úrskurðað gjaldþrota í febrúar og nemur gjaldþrotið sem fyrr segir rúmum þremur milljörðum króna.


Tengdar fréttir

Penninn í útrás í Eystrasalti

Penninn hefur keypt allt hlutafé í rekstrarvörukeðjunni Daily Service sem starfar í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Penninn hefur verið að sækja inn á markaði í kringum Eystrasalt.

Eigendur Pennans kaupa hlut í AN Office

Eigendur Pennans hafa fest kaup á 73 prósent hlut í lettneska rekstarvörufyrirtækinu AN Office, (Aigas Nams) sem er þriðja stærsta rekstrarfyrirtækið á Eystrasaltssvæðinu. Velta AN Office var um 1,5 milljarðar íslenskra króna á síðasta ári.

Penninn kaupir Tamore í Finnlandi

Penninn hefur keypt allt hlutafé í finnska fyrirtækinu Tamore, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á skrifstofuvörum.

Kaupþing tekur yfir rekstur Pennans

Nýi Kaupþing banki mun taka yfir rekstur Pennans ehf en undanfarna mánuði hefur bankinn átt í viðræðum við eigendur fyrirtækisins um endurskipulagningu á fyrirtækinu til að bjarga rekstrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×