Handbolti

Fannar Þór búinn að semja við ÍBV

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fannar Þór er hér í leik með Wetzlar gegn Kiel.
Fannar Þór er hér í leik með Wetzlar gegn Kiel. vísir/getty
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV eru að fylla upp í skörðin sem þeir hafa orðið fyrir síðustu vikur og í gær fengu þeir mikinn liðsstyrk.

Þá skrifaði Fannar Þór Friðgeirsson undir tveggja ára samning við félagið en Davíð Þór Óskarsson, formaður meistaraflokksráðs handknattleiksdeildar, staðfestir þessi tíðindi við mbl.is.

ÍBV hefur orðið fyrir höggum eftir tímabilið því Róbert Aron Hostert og Agnar Smári Jónsson fóru báðir í Val. Svo er markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson væntanlega á förum.

Fannar Þór er uppalinn Valsari en hefur verið í atvinnumennsku síðustu átta árin. Hann er búinn að spila í 1. og 2. deild í Þýskalandi og nú síðast með ASV Hamm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×