Erlent

Blóðbað á Gaza á meðan Trump er hrósað fyrir hugrekki

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá mótmælunum í dag þar sem Palestínumenn hafa kveikt í dekkjum en Ísraelsher hefur skotið á þá.
Frá mótmælunum í dag þar sem Palestínumenn hafa kveikt í dekkjum en Ísraelsher hefur skotið á þá. vísir/ap
Að minnsta kosti 41 Palestínumaður hefur verið skotinn til bana af Ísraelsher í mótmælum sem nú fara fram á Gaza-svæðinu vegna opnunar bandaríska sendiráðsins í Jerúsalem. Þá hefur BBC eftir yfirvöldum í Palestínu að að minnsta kosti 1800 manns hafi særst í átökunum. Talið er að um fjörutíu séu alvarlega slasaðir og á meðal þeirra sem hafa verið drepnir í mótmælunum er 14 ára drengur.

Athöfn sem markar opnun sendiráðsins hófst í Jerúsalem klukkan 13 að íslenskum tíma. Um 800 gestir voru við opnunina, þar á meðal dóttir Donald Trump, Bandaríkjaforseta, Ivanka Trump, og eiginmaður hennar Jared Kushner.

Það var í desmber í fyrra sem Trump tilkynnti um ákvörðun sína að opna sendiráð Bandaríkjanna í Ísrael. Ákvörðunin er afar umdeild þar sem bæði Palestínumenn og Ísraelar gera tilkall borgarinnar; þeir fyrrnefndu líta á austurhluta Jerúsalem sem höfuðborg sína og hinir síðarnefndu telja borgina einfaldlega sína höfuðborg.

Benjamin Netanyahu, Jared Kushner og Ivanka Trump við opnun sendiráðsins í dag.vísir/ap

Sagði Ísrael fullvalda ríki sem megi ákveða hvar það hefur sína höfuðborg

Þegar Palestínumenn og Ísraelar sömdu um frið árið 1993 var tekið fram að framtíðarstaða Jerúsalem yrði viðfangsefni viðræðna í framtíðinni. Slíkar viðræður hafa ekki farið fram og þykir Trump því vera að slá vopnin úr höndum Palestínumanna með ákvörðuninni um sendiráð í borginni.

David Friedman, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, bauð gesti á opnuninni velkomna og hrósaði Trump fyrir hugrekki og skýra sýn varðandi það að opna sendiráð í Jerúsalem. Þá þakkaði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, Trump fyrir og sagði að hann hefði skráð nafn sitt á spjöld sögunnar.

Trump var sjálfur ekki viðstaddur opnun sendiráðsins en sendi myndband með skilaboðum sem spilað var á staðnum. Sagði hann að loksins væri komið að þessu og minntist á það að Ísrael væri fullvalda ríki sem mætti sjálft ákveða hvar höfuðborg þess væri. Þá benti hann á að ríkisstjórn Ísrael er með aðsetur í Jerúsalem sem og hæstiréttur landsins.

Gríðarlegur fjöldi Palestínumanna hefur mótmælt í dag og er talið að um 1800 manns hafi slasast.vísir/ap

Áhyggjufullur vegna þess hve margir hafa fallið

Ísraelsher segir að um 35 þúsund Palestínumenn taki þátt í „ofbeldisfullum mótmælum“ á Gaza við öryggisgirðinguna sem markar landamæri svæðisins og Ísrael. Segir herinn að tilgangur mótmælanna sé rjúfa gat í girðinguna og ráðast inn í ísraelsk samfélög hinu megin við hana.

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa fordæmt aðgerðir Ísraelshers á Gaza í dag og segja að verið sé að brjóta alþjóðalög og mannréttindi á svæðinu.

Þá sagði framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, við blaðamenn í Vín í Austurríki að hann væri áhyggjufullur vegna þess hve margir hafa verið drepnir í mótmælunum.

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er hæstánægður með sendiráðið í Ísrael ef marka má orð hans í dag.vísir/getty

„Einfaldlega að viðurkenna raunveruleikann“

Eftir að opnunarathöfn sendiráðsins var lokið sendi Hvíta húsið frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að viðurkenning Bandaríkjaforseta á Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels þýddi ekki að viðræður um framtíðarstöðu borgarinnar væru komnar á endastöð.

 

Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að með ákvörðuninni standi Trump við loforð sem hann gaf og að hann sé að „einfaldlega að viðurkenna raunveruleikann.“

Byggt á fréttum og textalýsingumGuardian og BBC.


Tengdar fréttir

Ísraelsher skaut þrjá Palestínumenn til bana

Þrír Palestínumenn voru skotnir til bana af ísraelska hernum við landamæri Ísraels og Palestínu í dag. Yfir 300 manns hafa í dag leitað sér læknishjálpar vegna harkalegrar meðferðar Ísraelshers á mótmælendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×