Viðskipti innlent

Loftleiðir semja til þriggja ára um lúxusferðir um heiminn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Í ferðunum eru Boeing 757 flugvélarnar innréttaðar með aðeins 50 til 80 sætum og mikil áhersla lögð á þægindi, veitingar og þjónustu að því er segir í tilkynningu.
Í ferðunum eru Boeing 757 flugvélarnar innréttaðar með aðeins 50 til 80 sætum og mikil áhersla lögð á þægindi, veitingar og þjónustu að því er segir í tilkynningu. Loftleiðir
Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur samið við National Geographic Partners / Global Adrenaline ferðaskrifstofuna um leiguflug með hópa í hágæðaheimsferðum. Flugið hefst undir lok næsta árs og er samningurinn til þriggja ára. Gert er ráð fyrir að tvær Boeing 757 vélar muni að jafnaði sinna ferðum af þessu tagi á næstu árum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Í heimsferðunum er mikil áhersla lögð á fyrsta flokks þægindi, veitingar og þjónustu.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir Loftleiðir og starfsfólk Icelandair Group. Sérstakar innréttingar hafa verið settar í vélarnar til þess að sinna ferðunum. Flugliðar okkar og matreiðslumeistarar hafa fengið hæstu einkunn hjá farþegum þessara ferða í gegnum tíðina. Orðsporið er því gott sem hefur leitt til þess að mikil eftirspurn er eftir þjónustunni“, segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, í tilkynningunni.

Árni Hermannsson er framkvæmdastjóri Loftleiða.Loftleiðir
Boeing 757 vélar félagsins eru sérstaklega útbúnar fyrir aðeins 80 farþega, sem hafa vélina til afnota sem einskonar einkaþotu meðan á heimsferðinni stendur. Hver ferð tekur að meðaltali þrjár vikur, þar sem 5-7 viðkomustaðir vítt og breitt um heiminn eru heimsóttir, og bíður flugvélin á meðan farþegar dvelja þar og skoða sig um. Flestar ferðirnar hefjast í Bandaríkjunum, en einstaka ferð byrjar í Evrópu og/eða Dubai.

Að jafnaði verða 13 áhafnarmeðlimir í hverri ferð, 3 flugmenn, 7 flugfreyjur/þjónar, 2 matreiðslumeistarar og 1 flugvirki. Áætlað er að yfir 30 ferðir verði farnar á samningstímabilinu.

Loftleiðir Icelandic hafa í samstarfi við Icelandair sérhæft sig í slíkum ferðum á undanförnum árum með vaxandi umsvifum fyrir helstu ferðaskrifstofur á þessu sviði. Að baki hverri ferð liggur mikil vinna víða innan fyrirtækisins. Reynsla og þekking starfsmanna hefur komið að sérstaklega góðum notum, hvort sem er við uppfærslu á farþegarými eða við skipulagningu ferðanna, sérstaklega þar sem oft er flogið á frumstæðar og framandi slóðir. Á undanförnum árum hafa vélar Icelandair heimsótt sjö heimsálfur í sambærilegum leiguflugum.


Tengdar fréttir

Samið um leiguverkefni í Suður-Ameríku

Loftleiðir Icelandic og suður-ameríska flugfélagið LAW hafa gert samning um leigu á Boeing 757-200 þotu frá og með október í vetur.

Árni tekur við sem framkvæmdastjóri Loftleiða

Árni Hermannsson, fjármálastjóri Loftleiða Icelandic, mun taka við sem framkvæmdastjóri félagsins í næstu viku. Guðni Hreinsson, núverandi framkvæmdastjóri, hefur sagt starfi sínu lausu hjá Loftleiðum eftir fjórtán ára starf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×