Erlent

Fyrrverandi tengdasonur aðstoðar við rannsókn á Manafort

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Paul Manafort var kosningastjóri Donald Trump.
Paul Manafort var kosningastjóri Donald Trump. Vísir/Ap
Fyrrverandi tengdasonur Paul Manafort, sem eitt sinn var kosningastjóri Donald Trump, er sagður hafa náð samkomulagi við saksóknara vestanhafs sem kveður á um samstarfsvilja hans í tengslum við rannsókn á meintum brotum Manafort.

Tengdasonurinn, Jeffrey Yohai, var eitt sinn náinn viðskiptafélagi Manaforts. Talið er að hann kunni að búa yfir margvíslegum upplýsingum sem gagnast gætu við rannsókn sérstaka rannsakandans Roberts Mueller sem ákærði Manafort undir lok síðasta árs.

Manafort er meðal annars ákærður fyrir peningaþvætti og að skrá sig ekki sem málafylgjumaður erlends ríkis. Hann vann meðal annars fyrir Viktor Janúkóvitsj, fyrrverandi forseta Úkraínu áður en hann tók við forstetaframboði Trump árið 2016. Í Virginíuríki er Manafort ákærður fyrir bankasvik og að skila röngum skattskýrslum.

Fyrrverandi kosningastjórinn hefur neitað sök. Manafort steig til hliðar sem kosningastjóri Trump í ágúst árið 2016 eftir að ásakanir komu fram um að hann hefði þegið milljónir dollara frá Janúkóvitsj.

Sjá einnig: Hefur ákært 22 á fyrsta ári rannsóknar

Þeir meintu glæpir eru þó taldir ótengdir framboði Trumps að því er best er vitað. Kosningalið Bandaríkjaforseta hefur sætt ítarlegri rannsókn síðastliðið ár vegna hugsanlegra tengsla þess við rússneska áhrifamenn.

Samstarfsviljayfirlýsing fyrrverandi tengdasonarins er sögð geta aukið verulega þrýsinginn á Manafort, sem leiddur verður fyrir dómara síðar á þessu ári.

Fyrrnefndur Muller sendi hóp rannsakenda á skrifstofu Yonhai í júní í fyrra. Eru þeir sagðir hafa spurt hann ítarlega út í samskipti Manafort og Trump, tengsl hans við rússneska auðkýfinga og hvernig honum áskotnuðust tugmilljóna dala lán í New York.


Tengdar fréttir

Hefur ákært 22 á fyrsta ári rannsóknar

Sérstakur saksóknari hefur rannsakað meint samráð forsetaframboðs Donalds Trump við Rússa. Rannsóknin leitt af sér ákærur á hendur nítján einstaklingum og þremur fyrirtækjum. Stóru spurningunni enn ósvarað og þrátt fyrir þrýsting Trump-liða heldur rannsókn áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×