Ný stjórn á 20 ára afmæli FKA Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. maí 2018 08:34 Nýkjörin stjórn FKA. Aðsend
Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) var kjörin á aðalfundi félagsins á miðvikudag. Fram kemur í tilkynningu frá FKA að frambjóðendur í stjórn hafi verið fjórar konur í þrjú sæti. Kosningu í stjórn hlutu Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatrygginga Íslands, Lilja Bjarnadóttir, lögfræðingur og eigandi Sáttaleiðin ehf. og þá hlaut Anna Þóra Ísfold, ráðgjafi og eigandi Isfold markaðsráðgjöf, endurkjör. Að auki sitja áfram í stjórn frá fyrra ári Áslaug Gunnlaugsdóttir, lögmaður og einn eiganda LOCAL lögmanna, Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi ráðgjafafyrirtækisins Strategíu ehf., Ragnheiður Aradóttir, stofnandi og eigandi viðburðafyrirtækisins PROevents og formaður FKA, Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Spyr. Haft eftir Rakel í tilkynningunni að framundan sé spennandi ár hjá FKA, sem fagnar 20 ára starfsafmæli sínu. „Það er því mikill fengur fyrir okkur að til stjórnarsetu skuli bjóðast kröftugur hópur kvenna, með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu en þess má geta að til viðbótar við stjórnarkjör á aðalfundi, voru ríflega 100 konur skráðar í nefndar- og deildarstörf fyrir starfsárið 2018-2019. Ég hlakka mikið til samstarfsins með þessum öfluga hópi kvenna sem og þeim 1150 leiðtogakonum sem nú eru virkir félagsmenn í FKA og fer hratt fjölgandi,” segir Rakel. FKA samanstendur af ríflega ellefuhundruð konum á öllum sviðum atvinnulífsins og telst yfir helmingur þeirra til forstjóra, framkvæmdastjóra og eiganda fyrirtækja. Meðal stærri verkefna FKA síðastliðin ár hefur verið átak til að auka ásýnd kvenna í fjölmiðlum, aukin hlutdeild kvenna í stjórnum félaga og nú síðast verkefnið Jafnvægisvogin, sem ætlað er að stuðla að aukinni hlutdeild kvenna í efra lagi fyrirtækja.
Mest lesið Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Viðskipti innlent Bein útsending: Má þetta bara? Viðskipti innlent Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Viðskipti innlent Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Viðskipti innlent KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Viðskipti innlent Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Viðskipti innlent Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Samstarf 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Bein útsending: Má þetta bara? Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálakerfið standi traustum fótum Sjá meira