Handbolti

Haldór Jóhann: Frábær vottun að menn fari í atvinnumennsku frá okkur

Benedikt Grétarsson skrifar
Halldór Jóhann á hliðarlínunni í dag
Halldór Jóhann á hliðarlínunni í dag vísir/andri marinó
„Það hefði allt þurft að ganga upp hjá okkur í dag og það gerðist svo sannarlega ekki. Við klikkum mikið í opnum færum og Aron Rafn vinnur í raun þessa seríu. Hann dettur aðeins niður í einum leik í þessu einvígi en er að öðru leyti alveg frábær,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH eftir 28-20 tap gegn ÍBV. Tapið þýddi að ÍBV lyfti Íslandsmeistaratitlinum.

Margir lykilmenn FH voru að glíma við meiðsli og það hafði sitt að segja.

„Gísli gat ekki skotið almennilega á markið en gefur okkur aðra hluti í staðinn. Ási var á annarri löppinni en við klikkum bara of mikið og gerum alltof marga tæknifeila. Það var öðru fremur sem réði úrslitum. Við hefðum þurft að vera með um 40% markvörlsu til að eiga séns en svona er þetta bara.“

Margir leikmenn FH hygga á atvinnumennsku að loknu þessu timabili og því ljóst að kjarninn í liðinu verður ekki sá sami á næsta tímabili.

„Það verða vissulega breytingar á liðinu en FH mun alltaf standa áfram og við munum bara sækja leikmenn í liðið. Við höldum okkar skipulagi að byggja á ungum strákum og breytum því ekkert. Það er bara frábær vottun fyrir okkur sem félag að fjórir leikmenn séu á leiðinni í atvinnumennsku. Þá hljótum við að vera að gera eitthvað rétt,“ sagði Halldór og hélt svo áfram.

„Vonandi koma þessir strákar bara aftur í FH þegar þeir koma aftur til Íslands en við þurfum auðvitað að skoða okkar mál. Við horfum bara bjartsýnir inn í framtíðina þó að vissulega séu menn svakalega svekktir akkúrat núna,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH.

 


Tengdar fréttir

Arnar: Ætluðum að hirða allar þessar dollur

Arnar Pétursson stýrði sínum mönnum í ÍBV til Íslandsmeistaratitils í dag og eru Eyjamenn búnir að taka alla titla sem hægt er á tímabilinu, Íslands-, bikar- og deildarmeistarar.

Agnar Smári: Get ekki endalaust verið stuðningsfulltrúi

Agnar Smári Jónsson fagnaði vel í leikslok í Kaplakrika í dag, rétt eins og hann gerði að Ásvöllum 2014 þegar ÍBV varð meistari. ÍBV varð Íslandsmeistari í annað sinn í sögu félagsins í dag.

Einar: Orkan var búin

FH tapaði fyrir ÍBV í úrslitaeinvíginu í handbolta í Kaplakrika í dag. ÍBV lyfti Íslandsmeistaratitlinum að leik loknum.

Umfjöllun og myndir: FH - ÍBV 20-28 | ÍBV er Íslandsmeistari

ÍBV er Íslandsmeistari karla í handbolta árið 2018. Eyjamenn unnu FH 20-28 í Kaplakrika og einvígið 3-1. ÍBV vann þar með þrefalt í vetur en áður hafði liðið tryggt sér bikar- og deildarmeistaratitilinn. Frábær árangur hjá frábæru liði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×