Innlent

Forsætisráðherra vill setja borgaralaun í framtíðarnefnd

Heimir Már Pétursson skrifar
Vísir/Vilhelm
Forsætisráðherra segir mögulegt að skoða hugmyndir um borgaralaun á vettvangi framtíðarnefndar en fyrri skoðun hafi leitt í ljós að þetta væri dýr leið sem ekki lægi fyrir hvernig ætti að fjármagna. Þingmaður Pírata segir borgaralaun geta jafnað arðinn af auðlindum sem fámennur hópur hafi sölsað undir sig.

Halldóra Mogensen þingmaður Pírata fer fyrir þingsályktunartillögu á Alþingi um könnun á kostum borgaralauna og átti í dag sérstakar umræður með forsætisráðherra um málið á þinginu.

Lífeyrisgreiðslukerfið svo sem eins og ellilífeyris- og örorkulífeyriskerfið er flókið. Það er bótakerfið einnig eins og til að mynda atvinnuleysisbótakerfið vegna þess að þessi kerfi tengjast öðrum hlutum. Hugmyndin á bak við borgaralaun er meðal annars að einfalda þetta kerfi.

En hugmyndafræðin er dýpri og víðtækari og gengur út á leið til skiptingar auðæfanna eftir að tæknivæðing hefur gert fjölda starfa óþörf eða sjálfvirkni tekið við af mannshöndinni.

„Megin hugmyndin er að verðmæti náttúruauðlinda sem ekki hafa verið framleidd af neinum en sem fámennur hópur hefur sölsað undir sig ætti að dreifast jafnt til allra. Arðinn af þessum auðlindum sem er í raun sameiginleg eign allra borgara ætti að skattleggja og deila. Þessi arður, eða laun, væru eðlilegur og meðfæddur réttur allra borgara,“ sagði Halldóra.

Tilraunir hafi verið gerðar með borgaralaun í ýmsum borgum, svæðum og jafnvel löndum á vissum sviðum. Vildi þingmaðurinn að forsætisráðherra gerði grein fyrir hug sínum til málsins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að ekki hafi verið settar fram raunhæfar leiðir um fjármögnun. En í samantekt upplýsingaskrifstofu Alþingis árið 2016 hafi kostnaðurinn verið metinn á um tólf hundruð milljarða miðað við 300 þúsund króna lágmarkslaun.

„Þannig að, að lokum myndi ég vilja segja að ég tel þetta áhugaverða umræðu. Umræðu sem við þurfum að taka hér á vettvangi Alþingis. Ég sé fyrir mér að framtíðarnefnd gæti til að mynda tekið þetta mál til umfjöllunar og sett þessi álitamál fram með skipulegum hætti. Því við þurfum að taka afstöðu til þeirra,“ segir forsætisráðherra.


Tengdar fréttir

Vill kanna áhrif borgaralauna á íslenskt samfélag

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna voru gestir Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag. Þar ræddu þau meðal annars frumvarp Pírata um borgaralaun.

Mikil tækifæri falin í vélvæðingu starfa

Rektor Háskólans í Reykjavík segir samfélagið þurfa að vera undirbúið fyrir aukna vélvæðingu starfa. Mörg störf gætu tapast en önnur komið í staðinn. Miklar líkur eru á að störf í fiskvinnslu og hreingerningum glatist miðað við




Fleiri fréttir

Sjá meira


×