Íslenski boltinn

Pepsi-spáin 2018: Heimkoma Rúnars ekki nóg

Óskar Ófeigur Jónsson og Tómas Þór Þórðarson skrifa
Rúnar Kristinsson er kominn heim.
Rúnar Kristinsson er kominn heim. Vísir/Anton Brink
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Pepsi-deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Íslandsmótið hefst 27. apríl en Valsmenn eiga titil að verja eftir að hafa orðið meistarar í 21. sinn í sögu félagsins á síðustu leiktíð.

Íþróttadeild spáir KR  5. sæti Pepsi-deildarinnar en það er sæti neðar en liðið endaði á síðustu leiktíð sem voru mikil vonbrigði í vesturbænum. KR-ingar verða ekki í Evrópu í fyrsta sinn í tíu ár og það hefur að einhverju leyti endurspeglað rólegan félagaskiptaglugga. Hóflegar væntingar eru í vesturbænum að þessu sinni þó svo að KR-ingar verða aldrei sáttir við neitt annað en Evrópusæti.

KR-liðið hefur verið það elsta í deildinni undanfarin þrjú ár en liðið hefur hvorki unnið deild né bikar á þessum tíma. KR vann fimm titla á fjórum árum frá 2011-2014 og var þá alltaf með eitt af elstu og reynslumestu liðunum en svo virðist sem aldurinn sé nú aðeins að bíta menn í rassinn í Frostaskjólinu.

Þjálfari KR er Rúnar Kristinsson sem er kominn heim eftir nokkurra ára dvöl í atvinnumennsku þar sem að hann þjálfaði bæði Lilleström í Noregi og Lokeren í Belgíu.  Rúnar er guð á meðal manna hjá KR enda uppalinn og var bæði öflugur leikmaður og þjálfari. Hann stýrði liðinu síðast frá 2010-2014 og vann fimm titla.

Svona munum við eftir KR

Það var lítið að frétta hjá KR-ingum í fyrra, jafnt innan sem utan vallar. Vonbrigði voru á vellinum og mætingin ekkert spes. Stuðningsmenn voru lítt spenntir fyrir liðinu og einhvern vegin náðist ekki upp nein stemning.

KR-ingar unnu aðeins einn af síðustu sex leikjum sínum svona til að toppa dapurt tímabil og misstu af sæti í Evrópu þannig í fyrsta sinn í áratug verður Frostaskjólið Evrópulaust.

Liðið og leikmenn
grafík/gvendur
KR-liðið er ekki mikið breytt og meðalaldurinn enn þá ansi hár. Hágæða leikmenn eru í röðum þeirra svarthvítu úr vesturbænum en sumir hafa ansi mikið að sanna eftir síðustu leiktíð þar sem þeir voru bara alls ekki góðir.

Albert Watson: Meira hefur verið talað um áhrif Norður-Írans utan vallar heldur en gæði hans í fótbolta en hann var fenginn til þess að fá smá talanda í vörnina og stemningu inn á völlinn. KR-ingar voru líklega með betri miðverði tæknilega séð innan sinna raða en þessi kaup gætu verið klók hjá Rúnari. Alvöru bresk stemning hefur sjaldan klikkað.

Óskar Örn Hauksson: Einn besti leikmaður KR frá upphafi heldur áfram að klæðast búningi vesturbæjarstórveldisins og er sem fyrr besti maður liðsins. Nú, þegar slagkrafturinn í sóknarleiknum er ekki alveg sá sami og áður, færist enn meiri ábyrgð á herðar þessa magnaða leikmanns sem verður vafalítið minnst sem eins af bestu leikmönnum KR frá upphafi.

André Bjerregaard: Daninn sterki kom með látum inn í deildina í fyrra og skoraði fjögur mörk í tíu leikjum en það var ekki síður ógnvænlegur skrokkur hans og hraði sem vakti athygli. Nú þegar Tobias Thomsen er farinn þarf Bjerregaard að gera enn betur í sóknarleiknum og skora fleiri mörk.

Markaðurinn
grafík/gvendur
Það hefur verið minna að gera á markaðnum hjá KR en oft áður. Albert Watson og Björgvin Stefánsson eru óskrifuð blöð í efstu deild en Björgvin, sem hefur raðað inn í Inkasso-deildinni, fær nú tækifæri lífs síns að verða hetja hjá KR.

Kristinn Jónsson og Pablo Punyed eru góðir leikmenn. Kristinn var arfadapur eftir að hann kom heim í fyrra og El Salvadorinn þarf að sanna að hann geti verið stór fiskur í stórri tjörn. Hann gefur miðju KR samt ekki mikið aukalega.

KR-inar sakna ekki margra af þeim sem eru farnir nema þá helst Tobias Thomsen og mögulega Guðmundar Andra Tryggvasonar því ekki er breiddin mikil í KR-liðinu á miðað við keppinauta þeirra í efri hlutanum.

Markaðseinkunn: B-

Hvað segir sérfræðingurinn?

„KR hefur í gegnum tíðina alltaf verið spáð einu af toppsætunum en í ár eru margir sem líta á liðið sem óskrifað blað,“ segir Reynir Leósson, einn af sérfræðingum Pepsi-markanna, um KR-liðið.

„Það eru öflugir leikmenn þarna en tímabilið í fyrra var vonbrigði og nú reynir á. Menn hafa trú á Rúnari Kristinsson sem var stærsta nafnið sem kom í KR. Hann þekkir félagið út og inn og ætti að geta leitt liðið í toppbaráttu en það er alltaf krafan í vesturbænum.“

„Þetta verður krefjandi tímabil fyrir KR og margir leikmenn sem þurfa að sanna sig aftur eftir að hafa ekki verið upp á sitt besta í fyrra. Það mun mikið mæða á þessum helstu eins og Óskari Erni sem verður að vera í standi. Svo þarf KR að finna góðan framherja sem skorar slatta af mörkum,“ segir Reynir Leósson.

Spurt og svarað
grafík/gvendur
Það sem við vitum um KR er ... að liðið er gamalt en eldri leikmönnum fylgir reynsla. Rúnar Kristinsson er einn allra færasti þjálfari landsins og ákveðin spenna ríkir í vesturbænum bara vegna þess að hann er kominn heim. Það má ekki gleymast að í liðinu eru frábærir leikmenn á borð við Óskar Örn, Skúla Jón, Pálma Rafn og Kennie Chopart sem allir geta á sínum degi verið á meðal bestu leikmanna deildarinnar.

Spurningamerkin eru ... helst markvarslan og sóknarleikurinn. Beitir Ólafsson á að fá sénsinn frá byrjun móts eftir að taka stöðuna af Stefáni Loga í fyrra. Miðjan er áfram nokkuð þung en engu var bætt þar inn til að létta á henni. Hver á svo að skora mörkin? Bjerregaard er líklegur en Björgvin Stefánsson hefur verið að færast fjær liðinu á undanförnum vikum. Hópurinn er þunnskipaður og má illa við meiðslum.

Binni bjartsýni og Siggi svartsýni

Binni: Rúnar Kristinsson með KR í 5. sæti? Er þetta spá eða brandarakeppni? Eina sem vantaði í fyrra var smá stemning og hún kom með Rúnari. Það er þvílík stemning í vesturbænum og karfa enn eina ferðina að fara að leiða inn í Íslandsmótið með titli. Við erum með endalaust af ógeðslega góðum fótboltaköllum sem þurfa bara að vera aðeins jákvæðari gagnvart verkefninu.

Óskar Örn Hauksson er enn þá besti leikmaður deildarinnar og Rúnar er svo sannarlega að fara að taka til í varnarleiknum.  Bjerregaard er að fara að raða inn mörkum, ég meina það sáu allir hversu öflugur hann var eftir að hann kom í fyrra. Ég sé alveg fram á titilbaráttu ef liðið helst tiltölulega heilt í sumar og ekki verður Evrópa að bæta við leikjaálagið.

Siggi: Það hefur ekki beint sést í vetur að Rúnar sé að kveikja undir þessum gömlu köllum. Liðið hefur verið svakalega hægt og dauft yfir spilinu. Svo gengur okkur illa að skapa færi og hvað þá að skora mörk. Bjerrregaard er tankur en engin alvöru nía. Okkur vantar markaskorara eins og Reynir segir.

Það mun taka Rúnar smá tíma að finna sitt lið en hann virðist ekki hafa fengið fjármagn til alvöru kaupa í vetur. Hann hefur meira að segja talað um að hann hafi þurft að velja á milli Thomsen og Watson. Evrópuleysið virðist hafa gert pyngjuna töluvert léttari og það er að fara að bíta okkur í afturendann þegar að liðin fyrir ofan okkur er að eyða og eyða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×