Íslenski boltinn

Bein útsending: Upphitunarþáttur Pepsi-markanna

Hörður ásamt sérfræðingum sínum.
Hörður ásamt sérfræðingum sínum. vísir/skjáskot
Það styttist í að Pepsi-deildin hefjist en flautað verður til leiks á föstudaginn er Valur og KR mætast á Vodafone-vellinum og Stjarnan og Keflavík mætast í Garðabæ.

Í tilefni þess ætla Hörður Magnússon og sparkspekingar Pepsi-markanna að hita upp fyrir tímabilið með upphitunarþætti Pepsi-deildarinnar í kvöld.

Spekingarnir þetta sumarið eru úr hinum ýmsu áttum en búist er við afar skemmtilegri Pepsi-deild þetta árið.

Í þættinu í kvöld, sem er í beinni útsendingu, munu allir þjálfarar liðanna tólf í Pepsi-deild karla koma við sögu en fleiri gestir munu einnig koma við sögu í þættinum í kvöld.

Þátturinn hefst klukkan 21.30 en útsendinguna má sjá í sjónvarpsglugganum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×