Bíó og sjónvarp

Venom í öllu sínu veldi

Birgir Olgeirsson skrifar
Tom Hardy leikur Eddie Brock sem smitast af hýslinum Venom.
Tom Hardy leikur Eddie Brock sem smitast af hýslinum Venom.
Önnur stiklan úr ofurmyndinni Venom var frumsýnd á kvikmyndaráðstefnunni CinemaCon í Bandaríkjunum í nótt. Í myndinni leikur Tom Hardy réttsýna rannsóknarblaðamanninn Eddie Brock sem vinnur að umfjöllun um vísindamanninn Dr. Carlton Drake sem er sagður skaða manneskjur við rannsóknir sínar.

Brock smitast af hýsli sem tekur yfir líkama hans og breytir honum í veruna Venom. Sú vera er þekktust fyrir að vera einn af verstu óvinum Spiderman en í þessari mynd virðist hún vera einhverskonar andhetja þar sem hinn réttsýni Brock vill nýta kraftana sem hann fær af hýslinum til góðs.

Í þessu sýnishorni sést mun meira af Venom en í fyrsta sýnishorninu og bíða vafalaust einhverjir spenntir eftir frumsýningu myndarinnar í október næstkomandi.

Michelle Williams leikur eitt af aðalhlutverkunum í myndinni en hún lýsti því yfir á CinemaCon í gær að hana hafði lengi langað að leika í ofurhetjumynd sem sonur hennar gæti horft á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×