Lífið

Konur spila klassíska tóna

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Þær Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir ræsa tónleikaröðina í gang á sunnudaginn í Iðnó.
Þær Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir ræsa tónleikaröðina í gang á sunnudaginn í Iðnó.
KÍTÓN hefur staðið fyrir mörgum uppákomum og tónleikum en þetta er í fyrsta sinn sem félagið stendur fyrir klassískri tónleikaröð. Við fórum í samstarf við Iðnó þar sem fernir tónleikar verða haldnir í hátíðarsalnum og svo verða líka fernir tónleikar haldnir í Hofi á Akureyri. Þetta verður sem sagt sama prógrammið á báðum stöðum. Við byrjum á þessum fjórum skiptum núna í apríl, maí og júní,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir hjá KÍTÓN.

„Tilgangur félagsins er að efla samstöðu og sýnileika meðal kvenna þvert á allar stefnur og þess vegna langaði okkur að gera klassíkinni svolítið hátt undir höfði.“

Og á sunnudaginn næsta verða fyrstu tónleikarnir haldnir. Þá munu þær Erla Dóra Vogler mezzósópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja sönglög eftir Jórunni Viðar – hún hefði orðið hundrað ára á þessu ári. Jórunn er meðal dáðustu tónskálda þjóðarinnar og var fyrsta íslenska konan með próf í tónsmíðum og eina konan í Tónskáldafélagi Íslands í um tvo áratugi. Hún var frumkvöðull að mörgu leyti og samdi meðal annars fyrsta píanókonsertinn í fullri lengd hér á landi, fyrsta ballettinn og var fyrst Íslendinga til að semja kvikmyndatónlist.

Miðasala á tónleikana fer fram á tix.is. Tónleikarnir fara fram eins og áður segir í Iðnó þann 29. apríl og svo síðar í Hofi, eða þann 6. maí.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×