Innlent

Ekki hægt að hleypa leigjendum í leifar úr geymslum sem brunnu

Kjartan Kjartansson skrifar
Reynt verður að hafa uppi á eigendum muna sem hægt var að bjarga úr geymslum á 2. og 3. hæð húsnæðisins við Miðhraun.
Reynt verður að hafa uppi á eigendum muna sem hægt var að bjarga úr geymslum á 2. og 3. hæð húsnæðisins við Miðhraun. VÍS
Nokkrir heillegir munir eins og myndaalbúm hafa fundist í rústum geymsluhúsnæðis sem brann í Miðhrauni í Garðabæ fyrr í þessum mánuði. Samskiptastjóri Vátryggingafélag Íslands segir að unnið verði að því að hafa uppi á eigendum þeirra en ekki hafi verið talið óhætt að hleypa fólki á svæðið til að það geti leitað sjálft í rústunum.

Geymslur ehf. sendu frá sér tilkynningu á mánudag um að þeir sem leigðu geymslur á 1. hæð húsnæðisins sem varð eldi að bráð í stórbrunanum við Miðhraun 4. apríl ættu að vitja þeirra og tæma í þessari viku. Þar kom hins vegar fram að altjón hefði orðið á 2. og 3. hæð hússins.

Leigjandi geymslu á 3. hæðinni sem Vísir ræddi við í gær var ósáttur við að hafa ekki verið gefinn kostur á að fara sjálfur í gegnum leifarnar af eignum sínum.

Andri Ólafsson, samskiptastjóri VÍS, segir hins vegar að vettvangurinn sé talinn ótryggur og því sé ekki hægt að tryggja öryggi fólks. Þá séu leifarnar af geymslunum allar í einum haug og erfitt sé að rekja hver eigi hvað. Því hafi ekki verið hægt að leyfa leigutökum geymslnanna að róta í gegnum þær.

Altjón varð á 2. og 3. hæðinni að mati VÍS. Ekki var talið óhætt eða rétt að leyfa leigjendum að róta í gegnum leifarnar.VÍS

Albúm og disklingar á meðal þess sem fannst heillegt

Á tímabili hafi hugmyndir verið um að hreinsa allt út með stórvirkri vinnuvél og fara með leifarnar á haugana vegna þess að ekkert var talið eigulegt á efri hæðunum tveimur. Fallið var frá þeirri hugmynd.

Þess í stað fór tólf manna teymi í gegnum leifarnar í nokkra daga og fínkembdi þær, að sögn Andra. Starfsmennirnir hafi fundið einstaka hluti á efri hæðunum tveimur sem séu líklega ekki efnislega verðmætir en gætu haft tilfinningalegt gildi fyrir eigendurna.

„Það fundust nokkur myndaalbúm, það fundust disklingar sem voru merktir „myndir“. Svo fannst silfur sem virkaði að mati þeirra sem voru í þessu eins og mögulegir erfðagripir,“ segir Andri.

Þeir munir hafa verið teknir til hliðar og segir Andri að í kjölfarið verði reynt að hafa uppi á eigendum hlutanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×