Sport

Gunnar Nelson meiddur og bardaganum aflýst

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Meiddur
Meiddur vísir/getty
Bardagamaðurinn Gunnar Nelson meiddist á hné við æfingar um síðustu helgi og mun þurfa að undirgangast aðgerð. 

Þessi tíðindi þýða að fyrirhuguðum bardaga Gunnars gegn Neil Magny í Liverpool, 27. maí næstkomandi, hefur verið aflýst. Frá þessu er greint á erlendum MMA vefsíðum í dag.



Bardagans gegn Magny var beðið með mikilli eftirvæntingu og var um að ræða gott tækifæri fyrir Gunnar þar sem Magny er þremur sætum fyrir ofan Gunnar á nýjasta styrkleikalista UFC.

Ætla má að Gunnar verði frá í nokkrar vikur í kjölfar aðgerðarinnar.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×