Golf

Valdís í toppbaráttu í Morokkó

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir er í toppbaráttu í Lalla Maryem bikarnum sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi, sterkustu mótaröð Evrópu, eftir fyrsta hring mótsins í Morokkó í dag.

Valdís lék hringinn í dag á 71 höggi sem er eitt högg undir pari. Hún er jöfn í 5.-13. sæti eftir fyrsta hring, þremur höggum frá Nicole Garcia sem leiðir mótið á fjórum höggum undir pari.

Skagamærin fór hringinn í dag með þó nokkrum látum, fékk þrjá skolla og fjóra fugla.

„Ég var bara nokkuð ánægð með hringinn,“ sagði Valdís Þóra þegar hún hafði lokið keppni. „Ég byrjaði ekki með gott tempó í sveiflunni en náði að hægja á mér og járnahöggin voru orðin mjög góð frá fimmtu holu.“

„Ég er virkilega ánægð með hvar leikurinn minn er.“

Valdís fer af stað á öðrum hring klukkan 13:20 að íslenskum tíma á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×